Óeirðir og mótmæli í Bandaríkjunum eftir að niðurstöður kosninga voru ljós

Mikil reiði braust út víða í Banda­ríkj­unum í nótt eftir að sigur Donalds Trump í for­seta­kosn­ingum þar í landi varð ljós. Víða um landið er lög­reglan í við­bragðs­stöðu vegna ástands­ins.

Óeirðir og mótmæli í Bandaríkjunum eftir að niðurstöður kosninga voru ljós
Borg­ara­leg óhlýðni Kona gengur fram­hjá rusla­tunnum sem log­uðu í mót­mælum í Oakland í Kalíforníu. Mynd: Reuters

Ósáttir borg­arar hóp­uð­ust saman í Banda­ríkj­unum og mót­mæltu í nótt eftir að nið­ur­stöður for­seta­kosn­ing­ana lágu fyrir. Á sumum stöðum urðu mót­mælin að óeirðum þar sem hópar fólks kveiktu elda og brutu rúður. 

Mótmæli brut­ust út víðs vegar um landið, en voru þó mest áber­andi meðal háskóla­nema í Kali­forníu í Oregon-ríki, þar sem Hillary Clinton fór með sigur af hólmi. Það dugði þó ekki til að tryggja henni sigur í for­seta­kosn­ing­unum. 

„Til fjand­ans með Donald Trump!“

Ósáttir kjós­endur tóku reiði sína út með því að brenna fána og hrópa: „Ekki minn for­seti!“ [e. Not my pres­ident,] „Til fjand­ans með Donald Trump!“ [e. Fuck Donald Trump] og „Fólkið, sam­einað mun aldrei verða sundrað,“ [e. The people, united, will never be divided.]

Víða í Banda­ríkj­unum er lög­reglan í við­bragðs­stöðu vegna hættu á óeirðum, en talið er að fólk muni sætta sig við úrslit kosn­ing­ana og mót­mæl­unum muni ljúka fljót­lega.

Sigur Trumps í nótt kom mörgum á óvart, því und­an­farnar vikur hefur Clinton haft yfir­hönd­ina sam­kvæmt könn­unum. Hún var öld­ung­ar­deild­ar­þing­kona á árunum 2001 til 2009, inn­an­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna undir stjórn Obama frá 2009 til 2013 og fylgdi eig­in­manni sínum, Bill Clinton, í Hvíta húsið þegar hann var kjör­inn for­seti. Hinn nýkjörni for­seti, Donald J. Trump, hefur hins vegar aldrei komið nálægt stjórn­málum áður. 

Tef Poe, áber­andi tals­maður Black Lives Matter hreyf­ing­ar­innar sem berst fyrir auknu rétt­læti til handa svörtum í Band­ríkj­unum, vakti tals­verða athygli í mars síð­ast­liðnum. Þá lýsti hann því yfir á Twitter að færi svo að Trump sigr­aði þá yrðu óeirðir all­staðar. „Ágæta hvíta fólk. Ef Trump sigrar eru ungir blökku­menn eins og ég aldeilis harð­á­kveðnir í að hefja óeirðir hvert sem við förum. Ég er bara að láta ykkur vita.“ Tef Poe eyddi síðar tíst­inu og reyndi að sverja það af sér.  

Tístið
Tístið þar sem Tef Poe hótar aðgerðum.

 

Fram eftir nóttu leit út fyrir að Clinton færi með sigur af hólmi, þar til það lá fyrir að Trump hafði óvænt sigrað ríki sem tryggðu honum sig­ur­inn, eins og Flórída. Stuðn­ings­menn hans þar voru hæstá­nægðir með nið­ur­stöður kosn­ing­anna.

Í Portland sýndu mót­mæl­endur hins vegar óánægju sína með því að brenna fána lands­ins:

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar í BNA 2016

ErlentForsetakosningar í BNA 2016

Berg­málið frá Hitler: Er Trump fas­isti?

Á dög­unum sagði Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­maður Pírata, úr ræðu­stól á Alþingi að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti væri fas­isti. Óli Björn Kárason þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins and­mælti því, og nokkrir aðrir sömu­leiðis. En fleiri hafa velt þessu fyrir sér og ekki aðeins hér á landi. Nýlega birti vef­síðan Slate við­tal sem blaða­mað­ur­inn Isaac Chotiner tók við breska sagn­fræð­ing­inn Richard Evans, þar sem einmitt var fjallað um hvort Trump væri á svip­uðum slóðum og fas­istar eða nas­istar líkt og Adolf Hitler.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár