Vara við eyðileggingu ósnortinnar náttúru á Íslandi

Óbyggðirnar eru auðlind Íslendinga, að mati OECD, Efnahags- og framfara­stofnunar Evrópu. Hún varar við efnahags­legum áhrifum af eyði­leggingu hennar í nýrri skýrslu um Ísland.

Hálendið
Hálendið Óbyggð­irnar eru auð­lind. Mynd: Shutterstock

Í nýrri skýrslu OECD, Efnahags- og framfara­stofnunar Evrópu, er varað við varanlegum skemmdum á óbyggðum Íslands, sem hafa munu í för með sér efnahagslegar afleiðingar.

Í skýrslunni er fjallað um að víðerni Íslands séu ein helsta auðlind lands­manna, sem beri að vernda.

„Í dag njóta íslensku óbyggðirnar og einstakt umhverfi vaxandi viðurkenningar sem mikilvæg efnahagsleg auðlind,“ segir í skýrslunni. Stofnunin mælir með því að ósnortið landsvæði verði verndað.

Varanlegar skemmdir

80 prósent ferða­manna sem koma til Íslands eru að sækja í landslag og náttúru, meðal annars óbyggðir landsins. Íslenska miðhálendið eru einhverjar stærstu óbyggðir í Evrópu og þriðjungur ferða­manna sækir þangað. En ósnortin náttúra liggur undir skemmdum.

„Ósnortin náttúra Íslands er mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn, en þróun ferða­mennsku hefur skapað aukinn þrýsting á náttúruna. Sumir (oft vinsælir) staðir hafa orðið fyrir umhverfis­skemmdum. Að miklu leyti er um eldfjalla­jarðveg að ræða sem er sérstak­lega rofgjarn, á sama tíma og gróður er viðkvæmur. Varð­veisla á aðdráttar­afli nátt­úrunnar krefst varfærins skipulags á land­notkun til að koma í veg fyrir eyði­leggingu óbyggða. Eyði­legging þessara staða verður líklega óafturkræf, sérstak­lega á svæðum þar sem áhrif mannsins geta varað í hundruð ára,“ segir í skýrslunni.

Hugmyndir um þjóðgarð ekki samþykktar

Í könnun árið 2011 kom fram að 56 prósent lands­manna voru fylgjandi stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Bæði þingmenn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar hafa lagt fram þings­ályktunar­tillögu á síðustu árum um stofnun slíks þjóðgarðs. Málið var endur­flutt á Alþingi í mars síðastliðnum, en hefur ekki náð fram að ganga. Í stjórnar­sáttmála Sjálfstæðis­flokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar er málinu haldið opnu, en þar segir: „Unnin verður sérstök áætlun um vernd miðhálendisins.“

Björt Ólafs­dóttir umhverfis­ráðherra lagði áherslu á verndun miðhálendisins í umræðum og auglýsingum fyrir alþingis­kosningar. Í mars síðastliðnum lagði hún hins vegar til að heimilað yrði að virkja á Skrokk­öldu á Suður­landi, sem veldur tölu­verðum umhverfis­áhrifum á hálendinu.  

Þá stendur yfir tilraun til að fá samþykki fyrir virkjun í Árnes­hreppi á Ströndum sem mun skerða stærsta, samfellda víðerni Vestfjarða. 

Íslenskt prinsipp að mega ferðast um

Þá segir að þriðjungur ferða­manna svari því í könnunum að þeim þyki vera of margir ferðamenn sums staðar á hálendinu.

Stofnunin nefnir ýmsa möguleika til að bregðast við, meðal annars gjaldtöku fyrir bílastæði, gjaldtöku og og aðgangs­takmörkunum á viðkvæmum svæðum. En lykil­atriðið sé að uppbygging innviða þýði ekki um leið skerðing óbyggð­anna. Innviða­uppbygging þurfi þannig að byggja á arðsemis­greiningu, sem taki mið af umhverfis- og félags­legum áhrifum. 

„... það brýtur gegn íslensku grundvallar­reglunni - réttinum til að ferðast um.“

„Aðdráttarafl óbyggð­anna skapar togstreitu á milli þarfarinnar fyrir nauðsyn­lega innviði fyrir ferða­mennsku og þarfarinnar til að vernda óbyggðirnar og tryggja mögu­leikann á einveru. Önnur lönd bregðast við áhrifum manna með aðgangs­kvótum og gjaldtöku á ákveðnum svæðum. Hins vegar getur verið kostnaðar­samt að viðhalda  og fram­fylgja slíkum kerfum, auk þess sem það brýtur gegn íslensku grundvallar­reglunni - réttinum til að ferðast um.“

Leggja til skoðun á flutningi innanlandsflugs

Stofnunin brýnir fyrir íslenskum stjórn­völdum að stefna í samgöngum og ferða­mennsku fari saman.

„Betri dreifing á ferða­mönnum um landið getur líka hjálpað til, en gæta þarf þess að tryggja að þetta leiði ekki til þess að útbreidd uppbygging éti upp meira af óbyggðunum sem eftir eru.“

Í þessu skyni mælir stofnunin með könnun á áhrifum þess að starf­rækja innan­landsflug frá Kefla­víkur­flugvelli. „Þróun innan­landsflugs frá Keflavík gæti verið valkostur til að kanna út frá arðsemis­greiningu.“

Borgar­yfirvöld í Reykjavík hafa ákveðið að flug­völlurinn verði fluttur úr Vatns­mýrinni eftir fimm ár og uppbygging íbúða­hverfis hafin þar. Jón Gunnarsson samgöngu­ráðherra hefur hins vegar sagt að engin önnur lausn sé á flug­vallar­málinu en að hafa hann þar. Hann boðaði að hann vildi hefja uppbyggingu á nýrri flugstöð í Vatns­mýrinni í Reykjavík á næsta ári. „ Í mín­um huga er miðstöð inn­an­lands­flugs í Vatns­mýri,“ sagði hann á dögunum. Jón, sem er í Sjálfstæðis­flokknum, nýtur ekki stuðnings samstarfs­flokkanna í ríkis­stjórn með þessi áform. Bæði Viðreisn og Björt framtíð segja skipulags­valdið liggja hjá Reykja­víkurborg.

Þá mælir stofnunin með því að undanþága ferða­þjónustu í virðis­aukaskatts­kerfinu verði afnumin, en Benedikt Jóhannesson fjármála­ráðherra hefur boðað þær breytingar, gegn andstöðu nokkurra þingmanna Sjálfstæðis­flokksins. Eins og staðan er nú nýtur ferða­þjónusta þess að greiddur er 11 prósent virðis­aukaskattur af starfseminni, en ætlunin er að hækka skatinn í efra þrepið, 22,5 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár