Norsk stjórnvöld reisa girðingu til að halda flóttafólki frá landinu

Skiptar skoð­anir eru á fram­kvæmdum norskra stjórn­valda, sem reisa nú girð­ingu með­fram landa­mær­unum við Rússland í til­raun til þess að hefta för flótta­fólks inn í landið.

Norsk stjórnvöld reisa girðingu til að halda flóttafólki frá landinu
Flótta­fólk hjólar yfir landa­mærin milli Noregs og Rúss­lands

Norsk stjórn­völd standa að bygg­ingu stál­girð­ingar með­fram landa­mær­unum við Rússland vegna fjölda flótta­fólks sem kom til lands­ins í fyrra.

Nýja girð­ingin, sem verður rúm­lega 200 metra löng og 3,3 metrar á hæð, mun verða í kringum Skorskog landamæra­stöð­ina, sam­kvæmt heim­ildum Reuters frétta­veit­unnar. Áætlað er að bygg­ingu hennar verði lokið áður en vetr­ar­frostin á svæð­inu hefj­ast.

Dóms­mála­ráð­herra lands­ins, Ove Vanebo, varði fram­kvæmd­ina í sam­tali við Reuters og sagði hana vera „ábyrgt úrræði,“ þrátt fyrir að um 23.000 manns, að mestu frá Sýrlandi, hafi sótt um hæli í Noregi í fyrra. Fjöldi þeirra sem sækja um hæli í land­inu hefur hins vegar fækkað um 95% á fyrsta þriðj­ungi árs­ins 2016.

„Ég sé enga þörf fyrir þessa girð­ingu,“ sagði Rune Rafa­el­sen, bæj­ar­stjóri Soer-Varanger, sem liggur nálægt landa­mær­unum, í sam­tali við Reuters. „Það eru allt of margar girð­ingar að rísa í Evrópu í dag,“ bætti hann við, og benti á dæmi um gadda­vírs­girð­ingar í þjóðum eins og Ung­verja­landi.

Linn Landro, sem til­heyri hópnum Refugees Welcome [e. Flótta­fólk Velkomið] sagði um fram­kvæmd­ina: „Það er skylda okkar að vera land sem fólk getur flúið til. Girð­ingin sendir mjög nei­kvæð skila­boð, einnig til Rúss­lands, af því hún segir: „Við treystum ykkur ekki.““

Flótta­fólkið notar reið­hjól til þess að kom­ast yfir landa­mærin, vegna þess að landamæra­eft­ir­lit Rúss­lands leyfir fólki ekki að fara yfir þau fót­gang­andi og það er ólög­legt að fara akandi inn í Noreg ef öku­mað­ur­inn er ekki með réttu papp­írana.

Mikið hefur verið rætt um vegg sem for­seta­fram­bjóð­andi repúblik­ana, Donald Trump, seg­ist ætla að reisa með­fram landa­mærum Banda­ríkj­anna og Mexíkó. Norsk stjórn­völd hafa áður vakið athygli fyrir aðferðir sínar sem miða að því að koma í veg fyrir að flótta­menn kom­ist til lands­ins.  Þau halda meðal ann­ars úti facebook síðu þar sem hryll­ings­sögur eru sagðar af mót­töku flótta­manna í land­inu, og hversu erfitt sé að fá hæli þar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár