Myndband sýnir varg á Skólavörðustíg

Minkur hljóp inn á hár­greiðslu­stofu í mið­bænum í gær. Líklegt er að hann gangi enn laus í mið­borg­inni.

Myndband sýnir varg á Skólavörðustíg

Sá sjald­gæfi atburður varð í gær að minkur kom hlaup­andi inn á hár­greiðslu­stofu í mið­borg Reykja­víkur og olli þar usla. Á með­fylgj­andi mynd­bandi sést hvernig minknum er stuggað burt af rak­ara.

Hörður Freyr Harð­ar­son, rak­ari á Slippnum við Skóla­vörðu­stíg í Reykja­vík, segir að mink­ur­inn hafi vakið lukku fremur en ótta. „Hann hljóp hérna inn og tók ein­hvern hring og ég fældi hann út. Ég kró­aði hann hérna, fór bak við hann og kom honum út um hurð­ina. Það var svo­lítið erfitt því það var fólk hérna fyrir utan að hlæja og taka myndir. Ég bað þau um að koma sér frá hurð­inni svo ég gæti komið kvik­ind­inu út,“ segir Hörður. Hann segir að mink­ur­inn hafi ekki verið árás­ar­gjarn. „Þetta var örugg­lega eitt­hvað gælu­dýr, það hlýtur að vera því hann var ekk­ert að hvæsa eða neitt þannig.“

Mjög sjaldgæft að minkur sjáist í miðbænum

Guð­mundur Björns­son, rekstr­ar­stjóri hjá Mein­dýra­vörnum Reykja­vík­ur­borgar, veit af umræddum mink. Guð­mundur segir það helst ger­ast á þessum árs­tíma að minkar sjá­ist innan borg­ar­marka. „Það er ekki algengt að við verðum varir við slíkt niðri í bæ, það er þó tölu­vert af honum í landi Reykja­víkur, við Kjal­ar­nes og Elliða­vatn með ám, vötnum og strönd­inni. Á þessum tíma ger­ist það, því nú eru hvolpar að fara frá læð­unum og ung­viðið er vit­laust,“ segir Guð­mundur.

Í fyrra­sumar var rætt um minka­plágu í Elliða­ár­dal.

„Ég veit nú ekki hvort hann sé far­inn út úr póst­núm­er­inu en hann er lif­andi enn þá.“

Guð­mundur segir að umræddur minkur hafi ekki náð­ist og gangi því laus, þó óvíst sé hvort hann sé enn á ferli í 101 Reykja­vík. „Við fengum til­kynn­ingu og brugð­umst strax við og mættum á stað­inn, en kvik­indi hafa fætur og geta verið búin að forða sér. Ég veit nú ekki hvort hann sé far­inn út úr póst­núm­er­inu en hann er lif­andi enn þá. Við höfum ekk­ert heyrt meira af honum og það er svo­lítið skrýtið því þetta er inn í niðrum bæ. Ég hefði haldið að það væri slatti af hring­ingum,“ segir Guð­mundur.

Drepur allt sem hann þorir í

Hann segir að mink­ur­inn sé þess eðlis að hann flýi frá öllu stærra en hann sjálfur, en ef hann telji sig ráð við bráð­ina þá drepi hann hana. „Fyrsta sem mink­ur­inn myndi gera ef hann myndi mæta þér þá myndi hann hlaupa í burtu. Ef þú hins vegar myndir króa hann af og ætlar að taka hann, þá er það eins og með villi­ketti, refi eða rottur, þá bítur þetta frá sér. Þeir elta fólk ekki uppi og ráð­ast á og drepa,“ segir Guð­mundur og hlær.

Spurður um hvort það eigi við um minni dýr svo sem ketti svarar Guð­mundur: „Allt sem að hann er öruggur um að hann ráði við, það drepur hann. Mætti hann hundi eða ketti þá ef hann á kost þá hleypur hann frekar en að fara í það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár