Misskilningur í Costco: „Þá væri kíló mun dýrara en úr venjulegri búð“

Dæmi eru um að vörur í Costco séu dýr­ari en í öðrum versl­unum, þótt keypt sé í magni. 4,5 kíló­gramma Tobler­one var lækkað í verði um 70 pró­sent í gær.

Misskilningur í Costco: „Þá væri kíló mun dýrara en úr venjulegri búð“
Bið við Costco Umferð­ar­tafir hafa verið í nágrenni Costco og röð við versl­un­ina síð­ustu daga. Mynd: RÚV / Skjáskot

Þótt fjöldi dæma séu um að vörur í Costco séu mun ódýr­ari en í öðrum íslenskum versl­unum, sér­stak­lega ef þær eru keyptar í magni, eru sumar vör­urnar dýr­ari. Það gildir jafn­vel þótt keypt sé í stórum pakkn­ingum.

Versl­unin hefur slegið í gegn og hefur fólk beðið í löngum röðum til að kom­ast inn í hana, auk þess sem nágrannar hafa kvartað undan umferð­artöfum.

Facebook-hópur við­skipta­vina Costco - „Keypt í Costco - myndir og verð“ - er orð­inn einn sá fjöl­menn­asti á Íslandi, með 52 þús­und með­limi.

Gríðarleg ánægja með Costco

Í Facebook-hópnum hefur verið bent á fjölda dæma um vörur sem kosta meira í öðrum versl­unum á Íslandi. Við­skipta­vinir hafa játað ást sína gagn­vart versl­un­inni og greint frá því að þeir líti á hana sem vin sinn. „Ef það væri hægt að vera í ást­ar­sam­bandi með verslun þá væri það Costco hjá mér,“ segir einn við­skipta­vin­ur­inn í hópnum. „Vinir mínir sviku mig ítrekað. Ég eign­að­ist nýjan vin. Hann heitir Costco,“ segir annar við­skipta­vinur.

Í hópnum hefur komið upp mis­skiln­ingur um vöru­verð, þar sem margir gera ráð fyrir því að allt sé á lægsta verði í Costco. Þannig hvatti við­skipta­vinur versl­un­ar­innar aðra til þess að kaupa nauta­hakk í rúm­lega 2,5 kílóa skömmtum, sem þar er selt.

„2,5 kg af nauta­hakki á 1800. Kíló út úr annarri búð 1600. Um að gera að ná sér í það,“ sagði kona í hópnum. 

Hún var hins vegar leið­rétt, þar sem um er að ræða kíló­verð, en ekki verð fyrir þá stóru pakkn­ingu sem Costco selur. Við­skipta­vin­ur­inn átti erfitt með að trúa því að Costco hefði tölu­vert hærra verð en aðrar versl­anir. „Ertu viss? Það passar ekki. Þá væri kíló mun dýr­ara en úr venju­legri búð.“

Erfitt að fá upplýsingar um verð

Stundin hafði sam­band við Costco til að spyrja út í verðið á nauta­hakki í gær. Starfs­maður versl­un­ar­innar neit­aði hins vegar að gefa upp verðið. „Ég get ekki svarað því,“ sagði starfs­maður Costco, sem svar­aði í síma. 

Blaða­maður: „Þetta er núm­erið hjá ykkur, á já.is, er ekki hægt að hringja í ykkur og kom­ast að því hvað vörur kosta?“ 

Starfs­maður: „Nei. Það er ekki hægt. Bara koma í búð­ina.“

Blaða­maður: „Má ég koma inn í búð­ina ef ég er ekki með með­lima­kort?“

Starfs­maður: „Nei.“

Blaða­maður: „Ég er að hringja frá fjöl­miðli. Eruð þið með upp­lýs­inga­full­trúa eða eitt­hvað slíkt sem getur svarað spurn­ingum um hvað vörur kosta?“

Starfs­maður: „Augna­blik.“

Gefið var sam­band við mark­aðs­stjóra Costco. Vigdís Ingi­björg Páls­dóttir, sem gegnir stöð­unni, vildi ekki gefa upp verðið á nauta­hakki.

Mark­aðs­stjóri: „Við getum ekki gefið það upp svona í gegnum síma. En þú verður bara að kíkja í heim­sókn til okkar.“

Blaða­maður: „En ég má ekki koma í búð­ina nema ég sé með með­lima­kort.“

Mark­aðs­stjóri: „Ertu að segja mér að þú viljir ekki vera með­limur?“

Blaða­maður: „Ég er bara ekki með­limur.“

Mark­aðs­stjóri: „Það er skandall.“

Blaða­maður: „En það sem við erum að gera, er að fjalla um verð­lag, og verð­lag í Costco. Yfir­leitt hefur maður getað hringt í versl­anir ...“

Mark­aðs­stjóri: „Það besta sem ég get gert fyrir þig er að láta þig fá tölvu­póst­inn hjá fram­kvæmda­stjór­anum okkar. Þú getur sent spurn­ingar á hann.“

Blaða­maður: „Já, þannig að þið gefið ekk­ert upp verð í búð­inni?“

Mark­aðs­stjóri: „Við erum ekki að gera það núna.“

Brett Vig­elskas, fram­kvæmda­stjóri Costco, svar­aði ekki tölvu­póstum í gær með spurn­ingu um verð­lag á kjöt­hakki og inni­haldi þess.

Kjöthakkið dýrara í Costco

RöðinFjöldi fólks beið í röð dag­ana eftir opnun Costco.

Fram hefur hins vegar komið í máli og myndum við­skipta­vina Costco að þeir hafi greitt 1.899 krónur fyrir kílóið af nauta­hakki.

Þegar haft var sam­band við Bónus kom fram að verð þar er 1.798 krónur fyrir 100% ung­nauta­hakk frá Íslands­nauti. Ung­nauta­hakk fæst einnig á 1.798 krónur í mat­vöru­verslun Nettó. Naut­gripa­hakk er hins vegar á tölu­vert lægra verði en ung­nauta­hakk, sem og fryst nauta­hakk.

Kjöt­hakkið í Costco er einnig íslenskt, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem hafa komið fram í Facebook-hópi um kaup á vörum í Costco. 

4,5 kílóa Toblerone lækkað um 70 prósent

Tobler­one í CostcoKostar nú aðeins 3.000 krónur.

Athygli vakti meðal við­skipta­vina Costco í gær að ein vara fyr­ir­tæk­is­ins, 80 sentí­metra langt Tobler­one súkkulaði, var lækkað í verði um 70 pró­sent. Súkkulaðið fæst nú á 3.000 krónur, en var verð­lagt á 10 þús­und krónur í upp­hafi. Stykkið vegur um 4,5 kíló­grömm, eða líkt og þétt­vax­inn hvít­voð­ungur. Mikil ánægja skap­að­ist meðal við­skipta­vina Costco vegna lækk­un­ar­innar og birtir einn með­lima hóps­ins mynd af sér faðm­andi súkkulaði­stykkið með text­anum „The love of my life“. 

Miðað við kalor­íu­fjölda nægir 4,5 kíló­gramma Tobler­one-stykki með­al­mann­eskj­unni til orku­brennslu í 12 daga, borði hún ekk­ert annað. Hver hund­rað grömm af Tobler­one gefa 534 kalor­íur, en kalor­íu­þörf með­al­mann­eskju er rúm­lega 2000 á sól­ar­hring. 

Þetta jafn­gildir því að 100 gramma stykki af Tobler­one kost­aði 67 krónur, en 222 krónur fyrir lækk­un­ina. Einn við­skipta­vinur Costco sá sér leik á borði og keypti súkkulaði­stykkið til þess að veita gestum í brúð­kaupi sínu í sumar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár