Mín eigin Osló

Snæbjörn Brynjars­son end­aði alls­laus í Noregi dag­inn eftir banka­hrun og leidd­ist. Hann fór aftur núna og lík­aði þá betur.

Mín eigin Osló
Risa­vaxið þorp Hverfin í Osló eru of rík og of hrein til að geta verið jafn töff og Brooklyn eða Berlín.

Enginn Íslend­ingur fer for­dóma­laus til Noregs, hvort sem hann heldur að landið sé útópía hins vinn­andi manns eða útjaðar hins sið­mennt­aða heims þar sem þorps­bú­arnir í Osló kepp­ast um í hall­æris­leg­heitum á sumrin og skíðum á vet­urna. Ég er ein­hvers staðar hérna mitt á milli, en senni­lega segja allir mínir for­dómar meira um sjálfan mig en Norðmenn.


Þegar ég kom fyrst til Oslóar var dagur lið­inn síðan sein­asti af stóru bönk­unum þremur fór á haus­inn og á stóru gjald­eyr­is­skipta­töfl­unni þar sem gengi dags­ins var skráð las ég: ISK 0,00. Með öðrum orðum gat ég gleymt öllu um að kaupa mér NOK, norskar krónur. Sem betur fer hafði ég 20 doll­ara í vas­anum sem faðir minn hafði gefið mér til öryggis og það rétt dugði fyrir rút­unni af flug­vell­inum. Annað sem varð til að bjarga mér og kær­ustu minni frá betli, var að hún hafði tekið pen­inga úr hrað­banka reglu­lega mán­uði áður á meðan hún beið eftir mér. En þetta þýddi auð­vitað að öll plön um að gera eitt­hvað urðu að engu. Helsta skemmt­unin voru langir göngut­úrar, kaffi­bolli á kaffi­húsi var lúxus sem ég leyfði mér einu sinni í viku, ferða­lagið sem ég hafði planað breytt­ist í inn­kaupa­ferðir í Svíþjóð sem farnar voru á hálfs­mán­aðar fresti. Mér fannst drullu­leið­in­legt í Noregi. 


Nóg um það. Frá mínu sjón­ar­horni séð var lítið spenn­andi við að skreppa til Oslóar, þó að í þetta sinn væri ég að fara í vinnu­ferð að sýna verk með frönskum leik­hópi á Oslo Interna­sjonal Teater festi­val. Í huga mér var Osló inn­prentuð sem leið­inda­borg. Það er að vísu hægt að fara í ágæta göngut­úra, það eru fal­leg hús út um allt þótt minna sé um mann­líf. Í sam­an­burði við Osló iðar Reykja­vík af lífi, svo maður tali nú ekki um alvöru borgir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár