„Mannréttindalögfræðingur“: Fóstureyðingar eru aldrei einkamál kvenna

Jakob Ingi Jak­obs­son lög­fræð­ingur skrifar harð­orða grein um fóst­ur­eyð­ingar í Frétta­blaðið í dag. Segir konur verða að axla ábyrgð á eigin kyn­lífi. „Þessar konur virð­ast vera ein­ráðar.“

„Mannréttindalögfræðingur“: Fóstureyðingar eru aldrei einkamál kvenna
Grein mann­rétt­inda­lög­fræð­ings Jakob Ingi Jak­obs­son lög­fræð­ingur birti grein í Frétta­blað­inu í dag þar sem hann kvartar yfir því að karlar geti ekki komið því til leiðar að konur eign­ist börn sem þeir geri þær óléttar af. Mynd: skjáskot/Vísir.is

„Fóst­ur­eyð­ing er aldrei, né getur verið, einka­mál konu. Enda verður barn ekki getið nema með aðkomu karl­manns. Konur verða að axla ábyrgð á eigin kyn­lífi alveg eins og karl­menn!“ skrifar Jakob Ingi Jak­obs­son lög­fræð­ingur í aðsendri grein í Frétta­blaðið í dag. Jakob Ingi segir meðal ann­ars afstöðu karla snið­gengna í umfræðu fjöl­miðla um fóst­ur­eyð­ingar, sem sé ein­hliða og femínísk. 

Í Frétta­blað­inu er Jakob Ingi sagður mann­rétt­inda­lög­fræð­ingur en sam­kvæmt upp­lýs­ingum á lög­fræði­stofu hans er hann sér­mennt­aður í mark­aðs- og útflutn­ings­fræðum, verð­bréfarétti og fjár­mögnun hrað­vax­andi einka­fyr­ir­tækja. 

„Það þarf að gæta að rétt­indum feðr­anna og barn­anna sjálfra, en ekki ein­blína ein­göngu á skoð­anir kvenn­anna sem vilja ekki fæða né ala upp börnin sem þær hafa þó getið! Þessar konur virð­ast þó vera ein­ráðar og geta snið­gengið rétt ann­arra,“ skrifar Jakob Ingi  meðal ann­ars. Þá segir hann það rétt föður að fá að ala barnið upp einn eftir fæð­ingu ef hann vill. „Þá þarf hafa í huga rétt barns­ins sjálfs til lífs. Einnig þarf að skoða sið­ferð­is­legu hlið­ina á þessu gagn­vart feðrum og barni! Það má ekki ein­blína á hlið kon­unnar.“

Jakob Ingi gefur lítið fyrir rök um að konur eigi að hafa yfir­ráð­ar­rétt yfir eigin lík­ama. „Það er rétt að und­ir­strika það að kona hefur vald yfir eigin lík­ama þó henni sé gert að axla ábyrgð og afleið­ingar á eigin kyn­lífi!“ skrifar hann. Þá varar hann við öfga­fullum femín­isma. „Gleymum ekki heims­sög­unni og afleið­ingum öfga­fullra „isma“ – stefna er leitt hafa til mik­ils óréttar eins og fas­isma, ras­isma og nas­isma. Konur verða að gæta hófs í bar­áttu sinni. Því skerð­ing á umgengni og svona ein­hliða ákvarð­anir eru til þess fallnar að skerða rétt og vinna gegn hags­munum ekki bara karla, heldur fram­tíð barn­anna sjálfra!“

Margar upplifa þvingun og þrýsting frá karlmönnum

Silja Bára Ómars­dóttir og Steinunn Rögn­valds­dóttir gáfu nýlega út bók sem segir frá reynslu kvenna af fóst­ur­eyð­ingum. Þær segja umræðu um ábyrgð mjög ein­hliða og bein­ast að þeim konum sem verða óvænt þung­aðar. „Skila­boðin eru að þær hefðu átt að passa sig betur og sýna meiri ábyrgð. Þannig er skautað fram hjá ábyrgð karl­manna í þessu sam­hengi,“ skrifa þær meðal ann­ars í grein á Stund­inni. „Margar konur sem segja sögu sína í bók­inni lýsa miklum stuðn­ingi af hálfu karl­mann­anna í lífi þeirra. Aðrar hafa reynslu af þvingun og þrýst­ingi. Erlendar rann­sóknir sýna að á milli 6-22% kvenna sem fara í fóst­ur­eyð­ingu upp­lifa ofbeldi af hálfu maka. Í bók­inni okkar lýsa nokkrar konur reynslu sinni af því hvernig ofbeldi af hálfu maka hafði áhrif á ákvörðun þeirra um að fara í fóst­ur­eyð­ingu.“

Sjá einnig: Dagbók um fóst­ur­eyð­ing­una: Finn enn fyrir eft­ir­köst­unum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Reynsla kvenna af fóstureyðingum

ReynslaReynsla kvenna af fóstureyðingum

María Lilja Þrastardóttir

Dagbók um fóst­ur­eyð­ing­una: Finn enn fyrir eft­ir­köst­unum

María Lilja Þrast­ar­dóttir fór í fóst­ur­eyð­ingu síð­asta haust og hélt dag­bók í gegnum þetta ferli, sem hún birtir hér. Margt kom á óvart eins og það að hún þyrfti að fá fræðslu um getn­að­ar­varnir áður en aðgerðin væri sam­þykkt. Hún finnur enn fyrir eft­ir­köst­unum en er þakk­lát fyrir stað­fest­una.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár