Lýðræðisvaktin fer í málið við ríkið vegna námundunar

Stjórn­mála­flokk­ur­inn hefur farið í mál við ríkið vegna fjár­fram­laga og telur flokk­ur­inn að ríkið brjóta á rétt sínum með námundun aukastafs. Flokk­ur­inn fékk 2,4646 pró­sent atkvæða en nauð­syn­legt er að fá 2,5 pró­sent til að fá fjár­styrk.

Lýðræðisvaktin fer í málið við ríkið vegna námundunar

Lýð­ræð­is­vaktin hefur stefnt íslenska rík­inu vegna deilna um aukastaf. Í síð­ast­liðnum þing­kosn­ingum fékk Lýð­ræð­is­vaktin 4.658 greidd atkvæði sem þýðir að í pró­sentum talið fékk flokk­ur­inn 2,4646 pró­sent atkvæða.

Samkvæmt lögum um fjár­styrk rík­is­ins til stjórn­mála­flokka þarf við­kom­andi flokkur að fá að minnsta kost 2,5 pró­sent atkvæða til að geta átt kost á að fá styrk. Lýð­ræð­is­vakt­inni var því á sínum tíma synjað af fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu um fjár­styrk á grund­velli þess að tæp­lega 0,04 pró­sentu­stig vant­aði upp í lág­markið. Lýð­ræð­is­vaktin hefur nú stefnt rík­inu vegna þess­arar ákvörð­unar og telur flokk­ur­inn að ríkið ætti að námunda upp fylgi flokks­ins í lág­markið. Flokk­ur­inn á rétt á um 6 millj­ónum króna í styrk ef dóm­stólar sam­þykkja þá túlkun flokks­ins. Aðal­með­ferð í mál­inu  fer fram 8. októ­ber næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár