Héraðsdómur: Lögreglan mátti taka farsíma af manni og þurrka út myndir

Ríkið sýknað af skaða­bóta­kröfu Emils Thoraren­sen sem var hand­tek­inn fyrir að mynda lög­reglu­mann við störf. Lög­reglu­mað­ur­inn afmáði myndir úr far­síma hans. Dómarinn telur að und­ir­rituð sátt vegna hand­tök­unnar skipti máli. Fyr­ir­vari fang­ans við sátt­ar­gerð að engu hafður.

Héraðsdómur: Lögreglan mátti taka farsíma af manni og þurrka út myndir
Stefn­and­inn Emil Thoraren­sen stefndi rík­inu vegna þess að lög­reglu­maður á Aust­fjörðum þurrk­aði út myndir í leyf­is­leysi. Dómari telur að lög­reglu sé heim­ilt að eiga við far­síma fólks.

Íslenska rík­inu ber ekki að greiða ungum manni bætur vegna þess að lög­reglu­maður þurrk­aði myndir úr síma hans. Sigrún Guð­munds­dóttir, dóm­ari við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur, kvað upp þann dóm en jafn­framt var þol­and­anum ekki gert að greiða kostnað vegna máls­ins.

Máls­at­vik voru þau að 12. júlí 2015 var stefn­andi, Emil Thoraren­sen, hand­tek­inn fyrir að hlýða ekki fyr­ir­mælum lög­reglu og taka síma­myndir á vett­vangi. Lög­reglan hafði verið kölluð til vegna óláta og slags­mála á tjald­stæði á Nes­kaups­stað. Sá sem stefn­andi átti í deilu við, hlýddi fyr­ir­mælum lög­reglu og fór af vett­vangi. Hóf stefn­andi að taka upp afskipti lög­regl­unnar á far­síma sinn. Lög­reglu­maður á vett­vangi krafð­ist þess að stefn­andi léti af mynd­bands­upp­töku. Hann varð ekki við því. Stefn­andi var í fram­hald­inu hand­tek­inn og lok­aður í fanga­klefa í 40 mín­útur. Við hand­tök­una var far­sími hans tek­inn af honum og eyddi lög­reglu­mað­ur­inn mynd­böndum á meðan eig­andi sím­ans var frels­is­sviptur. Hinn hand­tekni féllst skrif­lega á að greiða sekt en setti þann fyr­ir­vara að hann mót­mælti inn­gripum lög­regl­unnar í sím­ann. Emil gerði í fram­hald­inu bóta­kröfu á hendur íslenska rík­inu upp á 800 þús­und krónur sem var hafnað. 

Ríkið verst

Fulltrúi rík­is­ins benti á að Emil hafi verið hand­tek­inn þar sem hann hafi ekki hlýtt fyr­ir­mælum lög­reglu og hafi þannig brotið gegn 19. gr. lög­reglu­laga nr. 90/1996. Með því að und­ir­rita sátt­ina hafi hinn hand­tekni við­ur­kennt þá hátt­semi með því að sam­þykkja sátta­boð sem liggur fyrir í mál­inu. Kröfu­gerð í stefnu sé þannig í and­stöðu við þá hátt­semi stefn­anda að við­ur­kenna sekt sína með því að und­ir­rita sátt­ina. Stefndi taldi í vörn sinni að mál­inu hefði lokið með und­ir­rit­un­inni.

Varðandi eyð­ingu á upp­tökum úr síma stefn­anda bendir varn­ar­að­ili á að lög­regla hafi ítrekað óskað eftir því að stefn­andi hætti að taka upp en hann hafi ekki sinnt því. Eins og fram komi í lög­reglu­skýrslu hafi þeim upp­tökum verið eytt úr sím­anum enda teknar upp and­stætt óskum og fyr­ir­mælum lög­reglu. Beri að hafa í huga að sím­inn hafi verið opinn og enn kveikt á mynda­vél­inni er lög­regla hafi tekið hann í sína vörslu.

Lögreglu ögrað

Dómarinn féllst á þessi sjón­ar­mið og sýkn­aði ríkið af kröfum um bætur. Engu skipti þótt stefn­andi hefði greitt sekt­ar­gerð­ina með fyr­ir­vara. Dómarinn telur að til­gangur stefn­anda með mynd­bands­upp­tök­unni hafi verið sá að ögra lög­regl­unni og trufla við störf sín. Samkvæmt lýs­ing­unni hafi upp­tök­unni verið beint að and­liti lög­reglu­manns­ins sem geti varla haft annan til­gang en reyna að hindra lög­regl­una í störfum sínum.

„Með vísan til alls þess sem að framan greinir hefur stefn­andi sjálfur stuðlað, í skiln­ingi síð­ari máls­liðar 2. mgr. 228. gr. laga nr. 88/2008 um með­ferð saka­mála, að þeim aðgerðum sem hann reisir kröfu sína á, og hefur eins og atvikum er háttað fyr­ir­gert rétti til bóta sam­kvæmt 1. mgr. sömu laga­greinar. Þar fyrir utan er van­reifað af hálfu stefn­anda hver miski hans er að hafa ekki and­lits­myndir af lög­reglu­manni í síma sínum. Að virtri ofan­greindri atburða­rás er því einnig hafnað að með­al­hófs hafi ekki verið gætt. Því er nið­ur­staða máls­ins sú að stefndi er sýkn­aður af öllum kröfum stefn­anda,” segir í dómi Sigrúnar Guð­munds­dóttur dóm­ara sem jafn­fram úrskurð­aði að máls­kostn­aður falli niður.

Til skoð­unar er að áfrýja mál­inu til Hæsta­réttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lögregla og valdstjórn

Lögreglan segir að gildandi lög hafi heft rannsókn á meintum ISIS-liða
FréttirLögregla og valdstjórn

Lög­reglan segir að gild­andi lög hafi heft rann­sókn á meintum ISIS-liða

Þrír menn voru hand­teknir 12. jan­úar síð­ast­lið­inn í umfangs­mik­illi lög­reglu­að­gerð á Akureyri. Tveimur var sleppt en sá þriðji, sem var grun­aður um aðild að ISIS-hryðju­verka­sam­tök­unum, var sendur úr landi ásamt fjöl­skyldu sinni. Lögregla hefur lítið tjáð sig um málið vegna rann­sókn­ar­hags­muna. Í svörum lög­reglu við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar er þess þó getið að lög­regla hafi ekki verið heim­i­ilt að nota allar upp­lýs­ing­arnar sem var miðlað til hennar við rann­sókn máls­ins vegna gild­andi lagaum­hverfis.
Helmingur yfirstjórnenda lögreglunnar fékk stöðuna án auglýsingar
FréttirLögregla og valdstjórn

Helm­ingur yfir­stjórn­enda lög­regl­unnar fékk stöð­una án aug­lýs­ingar

Ítrekað er vik­ist undan meg­in­regl­unni um aug­lýs­inga­skyldu þegar ráðið er í yfir­manns­stöður hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Eins og þið þekkið eru breyt­ingar og aug­lýs­ingar á yfir­manna­stöðum sér­stak­lega vel til þess fallnar að stuðla að óró­leika hjá emb­ætt­inu,“ sagði lög­reglu­stjóri í bréfi til starfs­manna. GRECO hefur gagn­rýnt verk­lagið.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár