Leiddi dópsala dóttur sinnar í gildru

Þrettán ára dóttir Valdísar Óskar Vals­dóttur reyndi sjálfs­víg fyrir rúmu ári síðan vegna ein­eltis. Ári síðar var hún komin á kaf í fíkni­efna­neyslu. Móðir hennar hefur fengið nóg af úrræða­leysi í kerf­inu og ákvað að hafa uppi á dóp­sala dóttur sinnar.

Leiddi dópsala dóttur sinnar í gildru
Neitar að gef­ast upp Valdís Ósk segir að hún muni aldrei gef­ast upp á dóttur sinni. Hún vill úrræði fyrir dóttur sína áður en það verður um seinan. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Hann kemur ekki til með að selja dóttur minni fíkni­efni aftur, ég held að það sé alveg á hreinu,“ segir Valdís Ósk Vals­dóttir, sem á dög­unum ákvað að taka málin í sínar hendur og leiddi dóp­sala dóttur sinnar í gildru í Reykja­nesbæ. Dóttir Valdísar Óskar er aðeins þrettán ára gömul, hefur verið lögð í ein­elti í mörg ár og reyndi sjálfs­víg fyrir tæpum tveimur árum síðan. Þrátt fyrir það segir móðir hennar að hún mæti algjöru skiln­ings- og úrræða­leysi í kerf­inu en dóttir hennar fékk tutt­ugu mín­útna við­tal á BUGL þegar hún fannst alblóðug með snöru um háls­inn á heim­ili sínu.

„Ég fékk sím­tal frá dóttur minni þar sem hún var heima og sagði bara: „Mamma, fyr­ir­gefðu“ og skellir síðan á. Ég fann bara á mér að það væri eitt­hvað að. Ég sagði við vinnu­veit­anda minn að ég þyrfti að fara heim og þangað brun­aði ég. Þegar ég kom heim kom ég að dóttur minni sem var öll út í blóði. Hún var að fara að hengja sig, komin með snör­una um háls­inn og hafði skorið sig alla. Þarna var ástandið orðið alvar­legt. Eineltið og ein­veran voru að gera út af við litlu dóttur mína og ég mætti úrræða­leysi hvert sem ég leit­aði,“ segir Valdís Ósk.

„Ég vil ekki þurfa að kaupa
lík­kistu fyrir dóttur mína.“

Dóttur Valdísar Óskar vegn­aði ekki vel í grunn­skóla. Hún átti fáa vini, í mesta lagi einn eða tvo, og frá 11 ára aldri var hún lögð í ein­elti upp á dag en það var þá sem móðir hennar fór að taka eftir ýmsum skap­gerð­ar­breyt­ingum. Dóttir hennar hafði fram að þessu haft gaman af líf­inu, var fjörug og „elskaði allt og alla“ eins og móðir hennar segir. En þegar hún var ell­efu ára þá breytt­ist eitt­hvað og Valdís Ósk tengir það við þetta mikla ein­elti sem dóttir hennar varð fyrir. Það er í raun það eina sem Valdís Ósk hefur til að útskýra þetta því engin stofnun hefur í raun tekið það að sér að greina hvað sé að dóttur hennar, hvort þetta sé bara ein­eltið eða eitt­hvað meira og alvar­legra sem er und­ir­liggj­andi. Úrræða­leysið er algjört og segir Valdís Ósk það krist­all­ast í þeim tíma sem við­bragðs­að­ilar hafi gefið dóttur hennar eftir að hafa reynt að svipta sig lífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár