Hjálpa fátækum börnum á Íslandi

„Ég hef séð það með eigin augum hvernig mis­skipt­ingin er,“ segir Styrmir Bark­ar­son, grunn­skóla­kenn­ari í Svíþjóð. Hann og eig­in­kona hans hafa und­an­farin ár safnað fyrir þau börn sem minna mega sín um jólin á Íslandi.

Hjálpa fátækum börnum á Íslandi
Styrmir og Marsibil Lillý Kenn­ara­hjónin ásamt dóttur sinni Freyju en á mynd­ina vantar son þeirra Fróða. Mynd: Úr einkasafni

„Ég hef verið grunn­skóla­kenn­ari í 12 ár og ég hef séð það með eigin augum hvernig mis­skipt­ingin er og hve hún svíður fyrir börn sem fara á mis við svo margt sem jafn­öldrum þeirra þykir sjálf­sagt,“ segir Styrmir Bark­ar­son, grunn­skóla­kenn­ari í Svíþjóð. Hann og eig­in­kona hans, Marsibil Lillý Guð­laugs­dóttir, hafa und­an­farin fjögur ár safnað fyrir efna­litlar fjöl­skyldur með það að mark­miði að létta jólin fyrir börn sem minna mega sín.

Hægt er að sjá sýn­is­horn af þeim gjöfum sem safn­ast hafa í ár í mynd­skeiði hér neðst í frétt­inni.

„Í skól­unum reynum við alltaf að gera það sem við getum til að létta undir með þeim börnum sem eiga minsnt. Hjálpin getur verið svo marg­vís­leg; stundum lánar maður vett­linga úr óskila­munum eða gaukar að börn­unum nýjum rit­föngum og passar jafn­vel upp á að eiga alltaf auka­nesti í skrif­borðs­skúff­unni. En svo eru þeir hlutir sem ómögu­legt er að eiga við,“ segir Styrmir fór að hugsa hvað hann gæti gert fyrir börn í aðdrag­anda jól­anna þegar hann heyrði nem­endur sína ræða saman um skógjafir.

Barnið sem ekkert fékk í skóinn

„Á aðvent­unni fyrir fjórum árum sat ég sem oftar og hlust­aði á krakk­ana ræða sín á milli um hvað þeir hefðu fengið í skó­inn og ég sá hvernig lítil stelpa braut heil­ann um það hvers vegna, ofan á allt sem hana skorti, jóla­svein­arnir hefðu enn eina ferð­ina sleppt því að gefa henni gjöf ólíkt hinum. Ég vissi jafn­framt að þessi stúlka var alls ekki sú eina. Svo ég lagði höf­uðið í bleyti og setti loks á Facebook litla stöðu­upp­færslu þar sem ég bað fólk um að hjálpa mér að versla nokkra smá­hluti sem hægt væri að koma rétta boð­leið svo að öll börn fengju í skó­inn, óháð þeim aðstæðum sem þau byggju við. Það vatt heldur betur upp á sig og þau jólin keypti ég í skó­inn fyrir um eitt hund­rað börn. Ég gat jafn­framt keypt jóla­gjafir handa þeim og meira að segja sent þau í bíó að sjá jóla­mynd­ina sem allir hinir voru að tala um,“ segir Styrmir sem end­ur­tók leik­inn árin á eftir.

„Hjarta mitt slær enn fyrir börnin heima“

„Já þá náði ég að kaupa á annað þús­und gjafir, stórar og smáar, í skó­inn og undir tréð. Ég gat svo bætt um betur og gefið eitt hund­rað börnum páska­egg bæði árin.“

Styrmir er hvergi nærri hættur en í ár stofn­aði hann sam­tök utan um söfn­un­ina en þau heita Lítil hjörtu. Hægt er að lesa um söfn­un­ina og fá allar upp­lýs­ingar um það hvernig er hægt að styrkja á Facebook-síðu sam­tak­anna.

Hundrað páskaegg
Hundrað páska­egg Um síð­ustu páska safn­aði Styrmir ásamt fjöl­skyldu sinni nægu fé til að kaupa um hund­rað páska­egg fyrir efna­litlar fjöl­skyldur. Hér er Freyja dóttir þeirra ásamt fullum bíl af páska­eggjum.

Lítil hjörtu úti um allt

„Sjálfur er ég fluttur til Sví­þjóðar en hjarta mitt slær enn fyrir börnin heima svo ég er hvergi nærri hættur og nýt aðstoðar móður minnar sem hefur verið á þönum í aðvent­unni að sækja og afhenda gjafir meðan ég fæ fólk til að leggja fé af mörkum. Aftur höfum við gefið um eitt hund­rað börnum jóla­gjafir, bíómiða og glaðn­inga í skó­inn. Vinajól Hjálp­ræð­is­hers­ins eru handan við hornið og þau munu fá jóla­gjafir frá okkur fyrir þau börn sem verja aðfanga­dags­kvöldi þar.“

Hann segir almenn­ing hafa tekið vel í fram­takið og að söfn­un­inni hafi til að mynda borist fram­lög frá vinnu­stöðum og grunn­skóla­bekkjum.

„Nokkrir bekkir haft sam­band við mig. Þau slepptu því að gefa hvort öðru jóla­gjöf á litlu jól­unum í skól­anum og gáfu þess í stað fé í söfn­un­ina. Þá voru líka nýlega haldnir tón­leikar í Kefla­vík­ur­kirkju þar sem hluti miða­verðs rann í sjóð­inn. Vel­gengni svona söfn­unar hvílir á sýni­leik­anum og þess vegna vona ég að sem flestir láti sig málið varða og kíki á Facebook-síðu sam­tak­anna.“

Hér er hægt að sjá sýn­is­horn af þeim jóla­gjöfum sem safn­ast hafa á þessu ári:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár