Karolinska-háskólinn vænir Landspítalann um að hafa haldið upplýsingum um plastbarkaþegann leyndum

Karolinska Institutet í Stokk­hólmi segir heimildar­mynd sænska ríkis­sjón­varpsins segja annan sannleika en upplýsingar frá Land­spítalanum. Tómas Guðbjartsson skurð­læknir sendi Karolinska-háskólanum gögn í fyrra um heilsu­ástand Andemariam Beyene. Þessar upplýsingar voru sagðar mikil­vægar þegar Karolinska sýknaði Paolo Macchiarini í fyrra. Nú eru upplýsingar frá Íslandi lykil­atriði í þeirri niður­stöðu Karolinska að Macchiarini hafi gerst sekur um vísindalegt misferli.

Ásaka Landspítalann
Ásaka Land­spít­al­ann Stað­hæf­ingar frá tíma­bundnum eft­ir­manni Anders Hamstein hjá Karol­inska-háskól­anum benda til að skól­inn átelji sjúkra­húsið fyrir óná­kvæma eða ranga upp­lýs­inga­gjöf um heilsu­fars­á­stand Andemari­ams Beyene sem gekkst undir plast­barka­að­gerð hjá Paolo Macchiarini árið 2011.

Háskólinn Karolinska Institutet ásakar Land­spítala Íslands um að hafa haldið upplýsingum um heilsufars­ástand fyrsta plast­barkaþegans Andemariams Beyene frá háskólanum þegar sjúkra­húsið veitti upplýsingar um líðan hans til háskólans eftir að hann fékk græddan í sig plast­barka. Þetta kemur fram í máli Jan Carlstedt Duke, sem svarar fyrir Karolinska Institutet og rann­sóknina á Paolo Macchiarini, eftir að rektor skólans Anders Hamsten sagði af sér á laugar­daginn. Jan Carlstedt segir þetta í viðtali við sænsku frétta­veituna TT sem birt var í sænskum fjöl­miðlum um helgina. Ásakanir Karolinska-háskólans eru hins vegar frekar óljósar. 

Orðrétt segir Jan Carlstedt í viðtalinu: „Við höfum greint þetta frekar og það hafa komið fram meiri og meiri upplýsingar sem sýna fram á að sú mynd sem við fengum í ummælum frá íslenska sjúkra­húsinu er önnur en sú mynd sem við höfum í dag. Nánar tiltekið á þetta við um  atburða­rásina eftir aðgerðina, það er að segja tímabilið frá aðgerðinni og þar til greinin í Lancet var birt.“

Jan Carlstedt útskýrir hins vegar ekki hvað hann á nákvæmlega með við með þessum orðum; hvaða gögn eða upplýsingar frá Íslandi er átt við þegar hann segir að upplýsingarnar sem bárust frá Íslandi hafi verið misvísandi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Plastbarkamálið

FréttirPlastbarkamálið

Uppljóstr­arar: „Plast­barkamálið er ennþá opið sár“

Tveir af uppljóstr­ur­unum í plast­barkamálinu svokallaða, Karl Henrik Grinnemo og Oscar Simonsson, lýsa reynslu sinni af því að segja frá því sem gerðist á Karolinska-sjúkra­húsinu þar sem þeir unnu. Karl Henrik segist hafa verið með sjálfsvígs­hugsanir eftir að hann varð fyrir hefndar­aðgerðum innan Karolinska-sjúkra­hússins. Þeir segja að uppgjörinu við plast­barkamálið sé hvergi nærri lokið í Svíþjóð og að gera þurfi almennilega rannsókn á því þar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár