Karl skilaði hestunum ekki til þrotabús

Karli Wernerssyni var gert að skila hrossa­rækt­ar­bú­inu Feti til þrota­bús Háttar. Fáeinum dögum áður voru helstu eignir félags­ins, 174 hross, færð yfir á annað félag í hans eigu. Aðeins dauð hross og folöld fædd á þessu ári voru skilin eftir í félag­inu.

Karl skilaði hestunum ekki til þrotabús

Fjár­fest­ing­ar­fé­lag Karls Wernerssonar var úrskurðað gjald­þrota í apríl 2012. Skipta­stjóri félags­ins, Jóhann Bald­urs­son, segir í sam­tali við Stundina að hann muni skoða hvort óeðli­lega hafi verið staðið að milli­færslu eigna úr hrossa­rækt­ar­bú­inu Feti yfir á önnur félög, sem eru í eigu Karls.

Karl keypti hrossa­rækt­ar­búið Fet, á Suð­ur­landi, í gegnum Hátt fyrir ríf­lega hálfan millj­arð króna árið 2007. Áður en félagið Háttur var tekið til gjald­þrota­skipta gerði Karl sam­komu­lag um skulda­upp­gjör sem fólst í því að hann gekk að veði í öllum eign­ar­hlutum hrossa­bús­ins.

Þrotabú Háttar fór fram á að sam­komu­lag­inu yrði rift. Hér­aðs­dómur Suð­ur­lands féllst á það í lok sept­em­ber og Karli var gert að skila hrossa­bú­inu. Fáeinum dögum fyrir úrskurð hér­aðs­dóms voru 174 hross hins­vegar flutt frá hrossa­rækt­ar­bú­inu Feti yfir á félagið SAMK. ehf. sem er alfarið í eigu Karls. 

Ekki ein­ungis hross voru færð úr Hrossa­rækt­ar­bú­inu FET því sam­kvæmt fast­eigna­skrá eign­að­ist Faxar ehf. jörð­ina og öll hús á eign­inni í upp­hafi mán­að­ar­ins. Félagið er alfarið í eigu Karls. Því má segja að litlu hafi verið skilað.

Í sam­tali við Stundina segir Karl að milli­færsla hest­anna á milli félaga eigi sér eðli­lega skýr­ingu. Hrossin hafi verið tekin upp í skuld. „Skýr­ingin er sú að hrossa­rækt er mjög erf­iður búskapur, sér­stak­lega eftir hrossa­fles­una en þá hrundi sala á hrossum. Ég hef rekið þetta hrossa­rækt­arbú í mörg ár með nei­kvæðum árangri. Ég fjár­magna tapið úr eigin vasa. Það var útséð að þetta fyr­ir­tæki gæti ekki greitt skuld­irnar þannig að það var ákveðið að fara í skulda­upp­gjör. Þessar skuldir urðu til frá árinu 2009 og hafa safn­ast upp öll þessi ár,“ segir Karl.

Hann segir að lyk­il­starfs­menn hrossa­bús­ins munu á næst­unni eign­ast hlut í eign­ar­halds­fé­lagi hross­anna, SAMK. Það sé vel mögu­legt að dómi hér­aðs­dóms verði áfrýjað.

Hesta­f­réttir fjöll­uðu í gær um eig­enda­skiptin á hross­unum. Í frétt Hesta­f­rétta kemur fram að um verð­mæt hross er að ræða og að flest hross sem skilin hafi verið eftir hjá hrossa­rækt­ar­bú­inu Fetu hafi ýmist verið dauð eða folöld fædd á þessu ári. Þar segir einnig að heið­ursverð­launa­stóð­hest­ur­inn Vil­mundur frá Feti sé nú í eigu SAMK eftir þennan gjörn­ing. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar nemur heild­ar­verð­mæti hross­anna hund­ruðum millj­óna króna.

Skiptum Háttar er ekki lokið. „Skipta­stjóri mun kanna þessar hreyf­ingar á eign­ar­haldi,“ segir Jóhann, skipta­stjóri í sam­tali við Stundina. 

Vilmundur frá Feti
Vil­mundur frá Feti Vil­mundur er heið­ursverð­launa­stóð­hestur.

Karl var mjög umsvifa­mik­ill á árunum fyrir hrun en hann er fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Milestone. Hann er enn eig­andi Lyf og heilsu. Í síð­ast­liðnum apríl var félagi Karls, Aurláka, gert að greiða þrota­búi Milestone tæpan millj­arð vegna Lyf og heilsu, sem var selt út úr Milestone rétt fyrir hrunið árið 2008 til Aurláka. Árið 2009 varð Milestone gjald­þrota og þrotabú félags­ins taldi að greiðslan vegna Lyf og heilsu hafi ekki verið full­nægj­andi. Þrotabú taldi að mark­mið söl­unnar hafi verið að koma Lyf og heilsu undan gjald­þroti Milestone. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur dæmdi þrota­bú­inu í vil og var Karli gert að greiða mis­mun­inn eða 970 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár