Íslendingur handtekinn í Flórída grunaður um morð: Hefnd og græðgi, segir unnusta hans

42 ára gam­all Íslend­ingur, Magni Böðvar Þor­valds­son, situr í gæslu­varð­haldi í Jacksonville í Flórída-fylki grun­aður um morð. Unnusta Magna Böðvars segir í sam­tali við Stundina að ásak­an­irnar bygg­ist á gremju og græðgi fyrr­ver­andi ást­konu Magna.

Íslendingur handtekinn í Flórída grunaður um morð: Hefnd og græðgi, segir unnusta hans
Magni Böðvar og Sherry Banda­rískir fjöl­miðlar hafa greint frá hand­töku Magna Böðvars í þar­lendum fjöl­miðlum en þar var þessi mynd birt af honum ásamt kon­unni sem fannst myrt, Sherry Prather.

„Hann er sak­laus,“ segir Sara, unnusta hins 42 ára gamla Magna Böðvars Þor­valds­sonar sem hefur verið í tíu daga í haldi lög­regl­unnar í Jacksonville í Flórída vegna gruns um morð.

Magni Böðvar // Johnny Wayne
Magni Böðvar // Johnny Wayne Situr á bak­við lás og slá í Jacksonville, grun­aður um að hafa myrt konu fyrir fjórum árum.

Um er að ræða fjög­urra ára gam­alt óleyst morð­mál en fórn­ar­lambið, hin 43 ára gamla Sherry Prather, sást síð­ast yfir­gefa knæpu á mót­or­hjóli ásamt Magna Böðvari. Það var 12. októ­ber árið 2012. Í byrjun nóv­em­ber sama ár fékk lög­reglan upp­lýs­ingar um lík­ams­leifar nálægt Braddock Road í Jacksonville. Það var lík Sherry.

Það tók rétt­ar­lækni tölu­verðan tíma að bera kennsl á Sherry þar sem lík hennar var illa farið vegna ágangs dýra. Bein í hálsi er sagt hafa komið yfir­völdum á sporið hver mann­eskjan væri en umræddu beini var komið fyrir í lækn­is­að­gerð sem Sherry und­ir­gekkst fyrir mörgum árum en á því var auð­kennis­númer sem hægt var að rekja til hennar. Hún er talin hafa verið myrt með skot­vopni.

Vitni fengu þrjú þúsund dollara

Magni Böðvar hefur ávallt haldið fram sak­leysi sínu en lög­reglan í Jacksonville yfir­heyrði hann skömmu eftir lík­fund­inn. Lög­reglan taldi þá ekki ástæðu til að ætla að Magni Böðvar hafi komið nálægt morð­inu en nú, fjórum árum seinna, hefur lög­reglan hand­tekið hann og ákært fyrir ann­ars stigs morð. Ef fund­inn sekur gæti Magni Böðvar þurft að dúsa á bak­við lás og slá í þrjá­tíu ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár