Íslendingar of hógværir við að segja sögu sína á netinu

Kristrún Lind Birg­is­dóttir og Hulda Þórey Garð­ars­dóttir reka ljós­mæðra­heim­ili í Hong Kong. Aðstoða Íslend­inga við fæð­ingu nýrra hug­mynda á sam­fé­lags­miðlum.

Mág­kon­urnar Kristrún Lind Birg­is­dóttir og Hulda Þórey Garð­ars­dóttir reka saman ljós­mæðra­heim­ilið Annerly í Hong Kong. Fyr­ir­tækið hefur fengið verð­skulda athygli að und­an­förnu og vann meðal ann­ars til verð­launa Mediazone fyrr á þessu ári fyrir að veita fram­úr­skar­andi þjón­ustu. Kristrún Lind þakkar vel­gengn­ina meðal ann­ars styrk­leika þeirra á inter­net­inu en þær Hulda vinna mark­visst í því að kynna fyr­ir­tækið á hinum ýmsu sam­fé­lags­miðlum. 

„Við sátum kvöld eftir kvöld yfir YouTube mynd­böndum og lærðum að nota Google+, Facebook og aðra sam­skipta­miðla. Við þræl­uðum okkur í gegnum þetta, en erum núna með YouTube-rás, við erum með Facebook, Instagram, Pinter­est og síðan erum við með blogg sem fær mjög mik­inn lestur. Við erum með digga fjör­tíu þús­und les­endur á hverjum mán­uði. Þar erum við að skrifa um fæð­ingar, brjósta­gjöf og allt sem teng­ist okkar þjón­ustu. En við notum okkur líka. Við drögum okkar per­sónur alltaf inn í fyr­ir­tækið. Það virkar ótrú­lega vel,“ segir Kristrún Lind, en þessa dag­ana eru þær Hulda Þórey staddar hér á landi að kenna nám­skeið sem snýr að því að virkja Íslend­inga í því að skapa sér atvinnu­tæki­færi í gegnum netið. 

Mágkonur ákváðu að fara í rekstur

Hulda flutti til Hong Kong ásamt eig­in­manni sínum, Stein­dóri Sig­ur­geirs­syni, árið 2000. Steindór er for­stöðu­maður fyrir Sæplast Asia í Hong Kong. Hulda er ljós­móðir að mennt og fékk hún fljót­lega vinnu hjá ljós­mæðra­stof­unni Annerly. Þegar í ljós kom að fyr­ir­tækið væri til sölu ákváðu þau hjónin að kaupa rekst­ur­inn. „Síðan þvæld­ist mað­ur­inn minn, sem er bróðir Huldu, inn í Sæplastið en ég kynnt­ist honum hér á Íslandi ein­hverju seinna. Hulda er nú búin að vera úti í Hong Kong í fimmtán ár, en ég flutti út árið 2007.“

Kristrún Lind hefur áður starfað sem grunn­skóla­stjóri á Flateyri og þá var hún aðstoð­ar­maður sam­göngu­ráð­herra í ráð­herra­tíð Sturlu Böðv­ars­sonar. En hvernig dróst hún inn í rekst­ur­inn í Hong Kong? „Hulda var búin að vera í þessu lengi sem fag­mann­eskja. Síðan ákváðum við að taka þetta skref­inu lengra. Þá keypti ég helm­ing­inn af fyr­ir­tæk­inu á móti henni og við óðum í að koma fyr­ir­tæk­inu betur á fram­færi,“ svarar Kristrún. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár