Mynd: Heiða Helgadóttir

Innanríkisráðuneytið neitar að tjá sig: „Ólöf! Ekki leyfa þeim að taka barnið mitt“

Til­finn­inga­þrung­inn sam­stöðu­fundur var hald­inn á Aust­ur­velli í gær með fimm ára dreng sem norska barna­verndin vill fá sendan til Noregs í fóstur. Síðustu tveir inn­an­rík­is­ráð­herrar hafa blandað sér í for­sjár­mál á milli landa með pen­inga­styrkjum en nú neitar ráðu­neytið að tjá sig.

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið neitar að tjá sig um mál fimm ára íslensks drengs sem verður sóttur af lög­reglu á heim­ili fjöl­skyldu sinnar eftir 37 daga og fluttur nauð­ugur til Noregs þar sem hann verður vistaður í þrettán ár hjá ókunn­ugum fóst­ur­for­eldrum.

Amma drengs­ins, Helena Brynj­ólfs­dóttir, hefur und­an­farna daga reynt að ná í ein­hvern hjá ráðu­neyt­inu sem hefur með þessi mál að gera en ekki haft erindi sem erf­iði. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur komst að þeirri nið­ur­stöðu að senda bæri dreng­inn aftur til Noregs, fyrra dval­ar­lands, á grund­velli alþjóða­samn­inga, en Helena flúði með hann frá Noregi vegna ákvörð­unar barna­vernd­ar­innar um að senda hann í fóstur hjá norskum fóst­ur­for­eldrum.

Helena og Eyjólfur
Helena og Eyjólfur Ef barna­verndin í Noregi fær Eyjólf í sína vörslu þá fær Helena ekki að hitta barna­barn sitt fyrr en eftir rúm þrettán ár.

Ráð­herrar sama ráðu­neytis hafa hins vegar í tvígang stigið inn í for­sjár­mál á milli landa. Þannig styrktu bæði Ögmundur Jónasson og Hanna Birna Krist­jáns­dóttir þriggja barna íslenska móður sem flúði með börn sín til Íslands frá Danmörku, í gegnum Noreg.

Fjármögnuðu flóttaflugvél

Málin eru keim­lík en þó ekki – Helena flúði með fimm ára gam­alt barna­barn sitt til þess að kom­ast undan norsku barna­vernd­inni en hin þriggja barna íslenska móðir, Hjördís Svan Aðal­heið­ar­dóttir, var að flýja danskan föður barn­anna. Þá kom einnig í ljós að hluti styrkj­anna frá ráðu­neyt­inu í ráð­herra­tíð Hönnu Birnu var not­aður til að fjár­magna leigu á flug­vél sem flutti mæðgurnar frá Noregi til Íslands. Frá þessu var greint í fjöl­mörgum fjöl­miðlum, meðal ann­ars í ítar­legri úttekt DV.

 „Ráðu­neytið tjáir sig ekki um málið.“

Samtals styrkti ráðu­neytið Hjördísi Svan um 2,3 millj­ónir króna en í svari frá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu á þeim tíma kom fram að fjár­mun­irnir væru ætl­aðir greiðslu á ýmiss konar kostn­aði – eins og ferða­kostn­aði, lög­fræði­kostn­aði, þýð­inga­kostn­aði og hús­næð­is­kostn­aði. Styrkir í stjórn­ar­tíð Ögmundar námu 964 þús­und en námu rúm­lega 1.330 þús­und krónum í tíð Hönnu Birnu.

Engin svör, engin aðstoð

Aðstoðin var hins vegar ekki aðeins í formi fjár­styrkja.  Einn af aðstand­endum Hjör­dísar Svan gekk svo langt að segja í við­tali við Frétta­blaðið að inn­an­rík­is­ráðu­neytið hefði lofað því að Hjördís og stúlk­urnar yrðu ekki sendar úr landi ef þær kæmu aftur til Íslands eftir flótt­ann til lands­ins. Sú sem sagði þetta er starf­andi prestur í Noregi, Arndís Ósk Hauks­dóttir. Í dag er hins vegar enga aðstoð að fá. Ekki einu sinni svar við þeirri spurn­ingu hvort inn­an­rík­is­ráðu­neytið sé yfir­höfuð að skoða málið.

Í svari inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar er bent á upp­lýs­inga­texta um Haag-samn­ing­inn sem finna má á vef­síðu inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Fyrir utan það var ein­fald­lega sagt: „Ráðu­neytið tjáir sig ekki um málið.“

Elva og Helena
Elva og Helena Mæðgurnar mættu á sam­stöðu­fund­inn í gær en 37 dagar eru þar til þau þurfa að afhenda fimm ára gamla dreng­inn.

37 dagar til stefnu

Stundin hefur fjallað ítar­lega um málið frá því Helena steig fram og sagð­ist hafa rænt barna­barni sínu til þess að bjarga því en hún flúði frá Noregi til Íslands í byrjun júní. Barna­verndin í Krist­i­ans­and, þar sem Helena bjó ásamt dætrum sínum, krefst þess að drengnum verði komið upp í flug­vél aftur til Noregs svo hægt sé að koma honum fyrir hjá fóst­ur­for­eldrum. Helena neit­aði að afhenda dreng­inn þegar inn­an­rík­is­ráðu­neytið hafði sam­band við hana þannig að ráðu­neytið aðstoð­aði norsku barna­vernd­ina að finna lög­mann til þess að berj­ast fyrir afhend­ingu drengs­ins fyrir íslenskum dóm­stólum.

„Ekki láta mín mis­tök bitna á barn­inu mínu.
Ég er að standa mig.“

Málinu tap­aði Helena og Elva Christina, móðir drengs­ins, og gaf dóm­ur­inn þeim mæðgum sex­tíu daga til þess að afhenda hann norsku barna­vernd­inni. Málinu hefur verið áfrýjað en það hefur ekki áhrif á þá sex­tíu daga sem þeim gef­ast til þess að kveðja barnið fyrir fullt og allt. 37 dagar eru til stefnu.

Vilja að innanríkisráðherra beiti sér
Vilja að inn­an­rík­is­ráð­herra beiti sér Fjöldi fólks kom saman á sam­stöðu­fund­inum fyrir framan Alþing­is­húsið í gær og kröfð­ust þess að Ólöf Nordal myndi beita sér í máli drengs­ins.

Sálfræðimati hent út af borðinu í héraði

Í gær var síðan hald­inn sam­stöðu­fundur á Aust­ur­velli og krafð­ist þar fjöldi fólks að inn­an­rík­is­ráð­herra myndi beita sér í mál­inu svo hægt væri að finna lausn á því hér á landi en ekki í Noregi. „Ólöf! Ekki leyfa þeim að taka barnið mitt. Ekki láta mín mis­tök bitna á barn­inu mínu. Ég er að standa mig. Leyfið honum að alast upp á Íslandi,“ sagði Elva Christina, móðir drengs­ins, á sam­stöðu­fund­inum í gær og var greini­lega mikið niður fyrir. Þar beindi hún orðum sínum til núver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, Ólöfu Nordal. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er starf­andi inn­an­rík­is­ráð­herra í fjar­veru Ólafar Nordal en sam­kvæmt fréttum er hún í veik­inda­leyfi.

Þess ber að geta að dreng­ur­inn kann enga norsku, talar íslensku, sækir íslenskan leik­skóla og á íslenska vini. Þá hefur hann búið hjá ömmu sinni nán­ast allt sitt líf og mat sál­fræð­ingur, sem gaf skýrslu um málið sem var ekki tekin til greina af Hér­aðs­dómi Reykja­víkur, það sem svo að dreng­ur­inn vildi búa hjá fjöl­skyldu sinni á Íslandi. Þá hefur barna­vernd­ar­nefnd Reykja­vík­ur­borgar heim­sótt fjöl­skyld­una reglu­lega auk þess sem móðir hans hefur skilað inn viku­legum prufum til þess að sýna fram á að hún sé ekki í neyslu heldur á bata­braut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnavernd í Noregi

Helena reynir að bjarga húsinu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi
FréttirBarnavernd í Noregi

Helena reynir að bjarga hús­inu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi

Á meðan Helena Brynj­ólfs­dóttir reynir að bjarga hús­inu sínu í Noregi þá eru norsk og íslensk yfir­völd að klára sam­komu­lag land­anna á milli varð­andi fram­tíð Eyjólfs Kristins. Elva Christina hefur fyr­ir­gert rétti sínum í Noregi með því skil­yrði að hann fái að alast upp á Íslandi. Norsk barna­vernd­ar­yf­ir­völd vilja að honum sé komið í fóstur utan fjöl­skyld­unnar.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár