Í lífshættu vegna foreldra sinna

Mikael sýnir á sér nýja hlið í bók­inni. Í stað brim­róts og eld­inga sem ein­kenna fyrri bækur hans er nú lognið alls­ráð­andi.

Í lífshættu vegna foreldra sinna

Mikael Torfason er upp­reisn­ar­maður á sviði bók­mennta. Fyrsta bókin hans, Falskur fugl, er mörkuð af því að höf­und­ur­inn bein­lín­ins logar af reiði og frá­sagn­ar­gleði. Honum er svo mikið niðri fyrir að les­and­inn á fullt í fangi með að fylgja honum eftir. Mikael skrif­aði í fram­hald­inu fleiri bækur í svip­uðum dúr. Þeirra á meðal er Heimsins heimskasti pabbi. Sá tit­ill hefði allt eins getað átt við nýj­ustu bók Mikaels, Týnd í Paradís.

Mikael sýnir á sér nýja hlið í bók­inni. Í stað brim­róts og eld­inga sem ein­kenna fyrir bækur hans er nú lognið alls­ráð­andi. Bókin rennur fram eins og lygn á og heldur ágæt­lega. En þrátt fyrir þá umgjörð er sagan hádramat­ísk. Undir kyrr­látu yfir­borð­inu er mann­legur breysk­leiki.  Um tíma snýst sagan um bar­áttu barns upp á líf og dauða þar sem ógn­vald­ur­inn er sá sem síst skyldi, sjálfir for­eldr­arnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár