Hundrað hjólreiðamenn sungu fyrir ósáttan gangandi vegfaranda

Hjól­reiða­hópur og gang­andi veg­far­andi sem lentu í stymp­ingum á göngu­stíg á Sel­tjarn­ar­nesi hitt­ust á sátta­fundi. Hjól­reiða­menn­irnir sungu og buðu Eirík Ein­ars­son vel­kom­inn.

Hundrað hjólreiðamenn sungu fyrir ósáttan gangandi vegfaranda
Sátta­fundur Eiríkur Ein­ars­son og hjól­reiða­fólkið áttu góða stund saman.

Hundrað og tveir hjól­reiða­menn hittu Eirík Ein­ars­son á Sel­tjarn­ar­nesi í gær­kvöldi til að sýna honum vin­áttu­vott og sátt­ar­hug.

Eiríkur hafði verið gang­andi á göngu­stíg á Sel­tjarn­ar­nesi fyrir skemmstu þegar hann lenti í stymp­ingum við hluta með­lima sama hjól­reiða­hóp. Hann lýsti atvik­inu í sam­tali við Stundina:  „Ég skil ekki almenni­lega hvað gerð­ist. Það var allt í einu eins og hefði verið ráð­ist á mig. Ég heyrði köll og allt í einu var ég far­inn hálf­part­inn að stymp­ast við menn sem dynja á mér. Ég tók nokkur högg. Þeir skullu á öxl­inni á mér,“ lýsti hann. Eiríkur við­ur­kenndi í sam­tali við Stundina að hann hefði misst stjórn á sér og sæi eftir því, en hjól­reiða­menn­irnir kvört­uðu undan því að hann hefði baðað út hönd­unum og staðið á miðjum göngu­stígnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Umferðarmenning

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár