Hefði kosið annað en kísilverksmiðju

Bæjar­stjórinn í Reykja­nesbæ hefði viljað umhverfis­vænni starfsemi í Helguvík. Einhverjir bæjarbúar vilja reyna að stöðva framkvæmdina.

Framkvæmdin komin of langt
Fram­kvæmdin komin of langt Bæj­ar­stjór­inn í Reykja­nesbæ segir að fyr­ir­huguð fram­kvæmd í Helguvík sé komin of langt til að sveit­ar­fé­lagið geti komið í veg fyrir hana.

„Ég hefði nú kannski kosið annars konar starfsemi í Helguvík ef ég hefði átt eitthvert val,“ segir Kjartan Kjartansson, bæjar­stjóri í Reykja­nesbæ, aðspurður um persónu­lega skoðun sína á fyrir­hugaðri byggingu fyrir­tækisins Thorsil á kísil­verksmiðju í Helguvík. 

„Því umhverfis­vænni starfsemi sem hægt er að fá hérna því betra,“ segir bæjar­stjórinn þegar hann útskýrir þá afstöðu sína til verksmiðjunnar en svo virðist sem hluti bæjarbúa í Reykja­nesbæ sé ósáttur við framkvæmdina samkvæmt Kjartani. „Ég er búinn að hitta þá nokkra sem setja spurninga­merki við þetta.“ Fyrir tveimur dögum sagði RÚV til dæmis frétt um að hestamenn í bænum hefðu áhyggjur af mengun frá verksmiðjunni í Helguvík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár