Hælisleitendur á hrakhólum

Vasa­pen­ingar til flótta­fólks sem Útlend­inga­stofnun þjón­ustar voru ekki greiddir út svo mán­uðum skipti, þrátt fyrir ítrek­aðar ábend­ingar Rauða kross­ins, og fólkið er enn í dag hýst á gisti­heim­ilum með til­heyr­andi auka­kostn­aði.

Hælisleitendur á hrakhólum

Flótta­menn, sem sótt hafa um hæli hér á landi það sem af er ári, hafa margir hverjir endað á fram­færi Útlend­inga­stofn­unar, sem er illa í stakk búin til að sjá þeim fyrir lög­boðnum nauð­synjum. Fram til þessa hefur félags­þjón­ustan í Reykja­nesbæ og í Reykja­vík séð um þjón­ustu fyrir alla hæl­is­leit­endur sem koma til Íslands, en í byrjun árs tók að skorta pláss hjá þeim. Vasa­pen­ingar til þess hóps sem Útlend­inga­stofnun þjón­ustar voru ekki greiddir út svo mán­uðum skipti, þrátt fyrir ítrek­aðar ábend­ingar Rauða kross­ins, og fólkið er enn í dag hýst á gisti­heim­ilum með til­heyr­andi auka­kostn­aði.

Sviknir um vasapeninga

Björn Teitsson, almanna­teng­ill Rauða kross­ins, segir hóp­inn nú telja um þrjá­tíu manns. Hann bætir við að Útlend­inga­stofnun hafi ekki verið und­ir­búin fyrir verk­efnið. „Þau eru ekki með starfs­fólk, ekki með reynslu og ekki með kunn­áttu,“ segir hann. Stofn­unin hafi ekki átt banka­reikn­ing sem hún gat borgað út af í reiðufé. Allir hæl­is­leit­endur fá Bónu­skort, sem átta þús­und krónur eru greiddar á í viku, svo fólkið var ekki á von­ar­völ. Hins vegar mega hæl­is­leit­endur almennt ekki vinna og eru því upp á vasa­pen­ing­inn komnir fyrir reiðufé, en sá vasa­pen­ingur nemur 2.700 krónum á viku. Þann pen­ing greiddi Útlend­inga­stofnun ekki út svo mán­uðum skipti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár