Hæðist að prófkjörum Pírata: „Auðvitað mismunur á því hvernig stjórnmálaflokkar skilgreina lýðræðisást sína“

Jón Gunn­ars­son, for­maður atvinnu­vega­nefndar Alþingis, ber próf­kjör Pírata og Sjálf­stæð­is­flokks­ins saman – Kemst að þeirri nið­ur­stöðu að „sumir sann­ar­lega hrópa meira en gera minna“.

Hæðist að prófkjörum Pírata: „Auðvitað mismunur á því hvernig stjórnmálaflokkar skilgreina lýðræðisást sína“

Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður atvinnu­vega­nefndar Alþingis, hæð­ist að Pírötum í færslu sem hann birtir á Facebook-síðu sinni. Þar gerir hann grín að því hve margir bjóða sig fram í próf­kjörum flokks­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

„Prófkjör Pírata á höfðu­borg­ar­svæð­inu vekur athygli. Það má með sanni segja að í því próf­kjöri sé fram­boð meira en eft­ir­spurn miðað við það sem áður er þekkt í próf­kjörum. Hjá hinu mikla "lýð­ræð­is­afli" eru yfir 100 fram­bjóð­endur og u.þ.b 2,000 mega kjósa, eða að jafn­aði 20 manns að baki hvers fram­bjóð­anda,“ skrifar Jón og bætir við: „Ef við berum þetta saman við próf­kjör Sjálf­stæð­is­manna á sama svæði fyrir síð­ustu kosn­ingar til Alþingis þá voru fram­bjóð­endur 35 og 14,912 tóku þátt eða 426 að baki hverjum kjós­anda. Við vorum tilltölu­lega sátt við þessa nið­ur­stöðu þó vissu­lega hefðu ein­hverjir viljað sjá fleiri kjós­endur mæta til þátt­töku. En það er auð­vitað mis­munur á því hvernig stjórn­mála­flokkar skil­greina lýð­ræð­is­ást sína. Sumir sann­ar­lega hrópa meira en gera minna.“ 

Sam­eig­in­legt próf­kjör Reykja­vík­ur­kjör­dæma og Suð­vest­ur­kjör­dæmis hófst í kosn­inga­kerfi Pírata í gær og stendur fram á föstu­dag­inn 12. ágúst. Eru 108 manns í fram­boði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár