Gunnar reiður út í barnavernd: „Ekki gamli bærinn minn“

Samþykkt hefur verið að lagið „Gamli bær­inn minn“ verði ekki spilað rétt fyrir flug­elda­sýn­ingu Ljósanætur í Reykja­nesbæ um helg­ina, að beiðni höf­undar lags­ins, Gunnars Þórð­ar­sonar. Hann er ósáttur við barna­vernd.

Gunnar reiður út í barnavernd: „Ekki gamli bærinn minn“
„Ekki gamli bær­inn minn“ Gunnar Þórð­ar­son hefur bannað Reykja­nesbæ að leika lagið á hátindi Ljósanætur annað kvöld.

Einn ást­sæl­asti tón­list­ar­maður lands­ins, Gunnar Þórð­ar­son, hefur bannað bæj­ar­yf­ir­völdum í Reykja­nesbæ að spila lagið hans „Gamli bær­inn minn“ undir flug­elda­sýn­ingu Ljósanætur um helg­ina eins og gert hefur verið und­an­farin ár. Í frétta­til­kynn­ingu sem Gunnar sendi Vík­ur­fréttum kom fram að „sam­skipti fjöl­skyldu minnar við eina af und­ir­stofn­unum Reykja­nes­bæjar er með þeim ólík­indum að ég banna flutn­ing lags­ins á Ljósa­nótt.“ Þá sagði Gunnar enn fremur að „þetta er ekki gamli bær­inn minn.“

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er málið við­kvæmt og bein­ist reiði Gunnars og fjöl­skyldu hans að barna­vernd Reykja­nes­bæjar. Sjálfur hefur Gunnar ekki viljað tjá sig frekar um málið en Stundin hafði sam­band við Kjartan Má Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóra Reykja­nes­bæjar. Kjartan Már sagð­ist hvorki mega, geta eða vilja tjá sig um málið. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá bæj­ar­yf­ir­völdum þá kemur Reykja­nes­bær til með að verða við beiðni Gunnars og því óljóst hvaða lag kemur til með að hljóma á undan flug­elda­sýn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu