Gunnar Hrafn: „Þeir eru að leika sér með mannslíf hérna“

Gunnar Hrafn Jónsson, þing­maður Pírata, var harð­orður í garð Óttars Proppé heil­brigð­is­ráð­herra á Alþingi í dag þegar hann gagn­rýndi rík­is­stjórn­ina fyrir áherslur sínar í geð­heil­brigð­is­málum. Vel­ferð­ar­ráðu­neytið skar nýverið niður fram­lög til Hug­arafls um 80 pró­sent.

Gunnar Hrafn: „Þeir eru að leika sér með mannslíf hérna“
Gunnar Hrafn segir ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar eins og blauta tusku í and­litið. Mynd: Heiða Helgadóttir

Gunnar Hrafn Jónsson, þing­maður Pírata, gagn­rýndi Óttarr Proppé heil­brigð­is­ráð­herra harð­lega á Alþingi í dag fyrir að skerða fjár­fram­lög til sam­tak­anna Hug­arafls. Hann sagð­ist sjálfur hafa nýtt sér þjón­ustu Hug­arafls og að hann væri ekki viss um hvort hann stæði hér í dag ef þeirra nyti ekki við. Gunnar Hrafn hefur verið mjög opin­skár um sín veik­indi og sagði meðal ann­ars frá þeim í við­tali á Stund­inni. 

Gunnar Hrafn byrj­aði ræð­una sína á því afsaka sig, hann þyrfti að skreppa út úr húsi klukkan tvö, af brýnni nauð­syn, til þess að mót­mæla fyrir utan vel­ferð­ar­ráðu­neytið. „Það eru mót­mæli af því að nú þegar er farið að bera á því að rík­is­stjórnin sé að svíkja þau lof­orð og þau fyr­ir­heit sem hún gaf um að bregð­ast við því neyð­ar­á­standi sem ríkir í málum fólks með geð­rask­anir á Íslandi,“ sagði hann. 

„Þetta er algjör sví­virða.“ 

Gunnar Hrafn sagð­ist sjálfur þekkja það af eigin raun að búið sé að marglofa fjöl­breytt­ari og hag­kvæm­ari úrræðum sem eigi að nýt­ast sem flestum. „Nú fáum við það sem blauta tusku í and­litið að hæst­virtur heil­brigð­is­ráð­herra, Óttarr Proppé, ætlar að skaffa sam­tök­unum Hug­ar­afli, sem hafa unnið ára­langt og gott starf — meðal ann­ars aðstoðað mig, ég veit ekki hvort ég stæði hér í dag ef þeirra nyti ekki við — rétt rúm mán­að­ar­laun þing­manns til að sinna sínum tæp­lega 200 skjól­stæð­ingum út heilt ár. Ég er satt að segja brjál­aður yfir þessu. Þau rétt skrimtu í gegnum síð­asta ár með átta millj­ónir, nú á að bjóða þeim 1,5 millj­ónir til að vinna sitt starf. Það þýðir bara að starf­semin leggst í raun og veru af.“

Þá krafð­ist hann þess að menn gerðu sér grein fyrir því að þeir væru að leika sér með manns­líf hérna. „Það eru engin önnur úrræði fyrir þetta fólk, það eru engin önnur úrræði sem eru ódýr­ari. Þetta er ódýrasta úrræðið sem við höfum, ann­ars endar þetta fólk inni í heil­brigð­is­kerf­inu, sem er marg­falt dýr­ara. Ég krefst þess að við fáum í stað­inn árs­laun þing­manns, 13 millj­ónir, til að reka þetta úrræði í ár og helst eitt­hvað meira á næsta ári. Þetta er algjör sví­virða,“ sagði Gunnar Hrafn. 

Vanvirðing við einstaklinga með geðraskanir

Hugarafl sendi þing­mönnum bréf þann 30. mars síð­ast­lið­inn þar sem kraf­ist var skýr­inga á skerð­ingu fjár­fram­laga til sam­tak­anna. „Með núver­andi fram­lagi vel­ferð­ar­ráðu­neytis er hér verið að skerða fram­lög ráðu­neyt­is­ins til Hug­arafls um 80 pró­sent frá fyrra ári og krefst það skýr­inga. Hvaða skila­boð eru gefin hér sam­tökum sem sinna gríð­ar­lega stóru hlut­verki í íslensku geð­heil­brigð­is­kerfi? Hvernig er hér komið fram við ein­stak­linga með geð­rask­anir? Hugarafl er stærsta úrræðið fyrir geð­sjúka utan stofn­ana á Íslandi og sækja 177 manns þjón­ustu mán­að­ar­lega. Hugarafl hefur sér­hæft sig í vald­efl­ingu og bata­mód­eli og verið braut­ryðj­andi í íslensku geð­heil­brigð­is­kerfi í þekk­ingu og reynslu á því sviði,“ segir meðal ann­ars í bréfi sam­tak­anna. 

„Samtal þarf að eiga sér stað nú þegar.“

Þá segir að Hug­arafls­menn líti á útspil stjórn­valda sem veru­lega van­virð­ingu við ein­stak­linga sem glíma við geð­rask­anir. „Samkvæmt áformum nýrrar rík­is­stjórnar í þessum mála­flokki stendur til að efla þjón­ustu við þennan hóp. Að því sögðu eru við­brögð stjórn­valda gagn­vart Hug­ar­afli til skammar og verður á engan hátt við unað. Samtal þarf að eiga sér stað nú þegar og hér með er óskað eftir því við alla þá þing­menn og ráð­herra sem láta sig mála­flokk­inn varða með sjálf­sögð mann­rétt­indi og virð­ingu að leið­ar­ljósi.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár