Gróðabrask á Stúdentagörðum

Félags­stofnun stúd­enta vaktar AirBnB vegna fram­leigu.

Gróðabrask á Stúdentagörðum
Stúd­enta­garðar Nýjasta til­vikið um fram­leigu nem­anda var við Lind­ar­götu í mið­bænum.

Ekki er óþekkt að háskóla­nemar sem leigi íbúð hjá Stúd­enta­görðum fram­leigi íbúðir sínar. Í lok febr­úar komst upp um nem­anda sem hafði fram­leigt íbúð sína við Lind­ar­götu til bróður síns, sem ekki stund­aði nám við Háskóla Íslands. Leigu­samn­ingi var taf­ar­laust rift við þann nem­anda. „Við fengum til­kynn­ingu um þetta frá nágranna. Við fengum upp­lýs­ingar um það hjá nágrönnum að það liti út fyrir að það væri ekki nem­andi sem byggi í íbúð­inni,“ segir Rebekka Sig­urð­ar­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Félags­stofn­unar Stúdenta, í sam­tali við Stundina.

Hlutverk Stúd­enta­garða er að bjóða háskóla­nemum upp á leigu á vel stað­settu hús­næði á sann­gjörnu verði. Eðli máls sam­kvæmt er leiga þar því undir mark­aðs­verði og því tæki­færi fyrir óprút­tna nem­endur að græða á fram­leigu.

„Það kom upp til­vik í fyrra­vetur þar sem við átt­uðum okkur á því að íbúi hafði í ein­hvern tíma leigt út hús­næði sitt.“ 

Nágrannar eru vakandi

Rebekka segir að miðað við þann fjölda sem leigir hjá Félags­stofnun stúd­enta sé merki­lega lítið um fram­leigu. „Það kom upp til­vik í fyrra­vetur þar sem við átt­uðum okkur á því að íbúi hafði í ein­hvern tíma leigt út hús­næði sitt. Þá var það líka ábend­ing sem við fengum, fólk er mjög vak­andi fyrir þessu. Það er mjög óeðli­legt að fólk sem leigir hús­næði sem er á félags­legum nótum sé að hagn­ast á því og leigja út ein­hverjum öðrum,“ segir Rebekka.

Leigði íbúðina til ferðamanna 

Hún segir að í til­vik­inu sem átti sér stað í fyrra­vetur hafi nem­and­inn leigt íbúð sína á leigu­vefnum AirBnB, en fjöl­margir Íslend­ingar hafa nýtt sér þann vef til að leigja íbúðir sínar út til ferða­manna. „Það var strákur sem var að aug­lýsa á AirBnB. Það var mjög ein­falt að finna út úr því máli. Eftir það þá fylgj­umst við með því. Ef þetta er einu sinni búið að koma upp þá áttar maður sig á því, maður hafði kannski ekki ímynd­un­ar­afl í það áður, svo kemur upp svo­leiðis mál þá auð­vitað tékkum við á því. Að mestu leyti er það þannig, vegna þess að lík­urnar á að kom­ast inn á Stúd­enta­garða eru það litlar, að ef fólk kemst inn vill það búa sjálft í hús­næð­inu,“ segir Rebekka. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár