Gekk út af Vogi vegna þess hvernig talað var um stúlkur

Kona um fimm­tugt þoldi ekki hvernig talað var um ung­lings­stelpu á staðnum, vegna þess að það minnti hana á við­horfið sem hún mætti sem ung kona, brotin eftir kyn­ferð­is­of­beldi. Hún gekk út af Vogi og þurfti að leita sér ráð­gjafar í kjöl­farið.

Kona um fimm­tugt gekk út af Vogi fyrr í vik­unni eftir að hafa heyrt á tal tveggja ung­lings­pilta í mat­salnum, þar sem þeir sögðu stúlku á ung­linga­deild­inni hafa gengið á milli her­bergja í kyn­ferð­is­legum til­gangi. Ung­linga­deildin er eina svefnálman á Vogi sem er ekki kynja­skipt en þar eru börn yngri en átján ára í með­ferð. Konunni var illa brugðið og leit á annan pilt­inn: „Hvað ert þú að segja?“ útskýrir hún og hann svar­aði kok­hraustur: „Hún vill þetta.“

Titrandi af reiði greindi konan starfs­fólk­inu frá þessu. „Öll athyglin fór á það hvað ég var van­stillt. Hvort um var að ræða sanna sögu eða hvort þeim finnst bara gaman að tala svona um konur þá kom þetta mér úr með­ferð. Ég er alin upp við svona tal um konur og get ekki hlustað á það í dag.“

Und­an­farið hafa margir ein­stak­lingar stigið fram og gagn­rýnt hvernig tek­ist er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár