Gagnrýnir uppsögn Landsbankans: „Það gengur fram af manni þegar maðurinn er búinn að vera þarna í þrjátíu ár“

Óskar Húnfjörð bygg­inga­fræð­ingur gagn­rýnir harð­lega að Guðmundi Ingi­bers­syni hafi verið sagt upp störfum í Lands­bank­anum í Reykja­nesbæ. Guð­mundur er 75 pró­sent öryrki og var honum sagt upp fáeinum mán­uðum eftir að hann sneri aftur í vinnu eftir alvar­legt slys.

Gagnrýnir uppsögn Landsbankans: „Það gengur fram af manni þegar maðurinn er búinn að vera þarna í þrjátíu ár“
Rekinn Guð­mundur Ingi­bers­son var rek­inn eftir 30 ára starf. Mynd: Facebook

Óskar Húnfjörð bygg­inga­fræð­ingur skrifar harð­orðan pistil sem birt­ist í Vík­ur­fréttum í morgun þar sem hann gagn­rýnir upp­sögn Lands­bank­ans í Reykja­nesbæ á Guðmundi Ingi­bers­syni. Guð­mundur, eða Gummi eins og hann er vana­lega kall­aður, hefur starfað í bank­anum um ára­tuga­skeið en Guð­mundur lenti í alvar­legu slysi nýverið og hefur hann í kjöl­farið verið met­inn 75 pró­sent öryrki.

Um síð­ustu páska varð Guð­mundur fyrir því að bíll keyrði inn í for­stofu á heim­ili móður hans. Guð­mundur var þar og slas­að­ist alvar­lega, þar á meðal á hendi, og var hann frá vinnu í nokkra mán­uði. Guð­mundur var þó fyrir öryrki en hann er spastíkur.

Samkvæmt Óskari, sem er mágur Guðmunds, var Guðmundi boð­inn starfs­loka­samn­ingur fjórum mán­uðum eftir að hann sneri aftur til vinnu eftir slysið. „Eins og á hverju almenni­legu heim­ili er þörf á að taka til öðru hvoru. Lands­bank­inn í Reykja­nesbæ er þar ekk­ert und­an­skil­inn, eins og sýndi sig um dag­inn þegar gerður var starfs­loka­samn­ingur við Gumma í „góðu“ sam­komu­lagi, því að öðrum kosti fengi hann sent upp­sagn­ar­bréf. Ástæða starfs­lokanna var sögð, til­tekt í bank­anum.

Auðvitað er hverjum atvinnu­rek­anda í sjálfs­vald sett hvenær hann hættir að kaupa þjón­ustu starfs­manns, en hér greinir okkur á um sam­fé­lags­lega ábyrgð bank­ans,“ skrifar Óskar.

Lætur ekki deigan síga

Í sam­tali við Stundina seg­ist Guð­mundur snort­inn af þessum við­brögðum en hann ætli þó ekki að láta deigan síga og hyggst finna sér nýja vinnu. „Ég upp­lifi það ekki beint að það sé verið segja mér upp út af örorkunni. Þeir sögðu að þetta væri hag­ræð­ing. Ég er per­sónu­lega mjög sár og reiður út af þessu, það var ekki planið mitt að hætta að vinna,“ segir Guð­mundur. Miðað við við­brögð við pistli Óskars á Facebook má ætla að Guð­mundar verði sárt saknað í bank­anum. „Ég er búinn að vera þarna lengi, með minn kúnna­hóp. Ég er mjög ánægður með að fólk hugsi svona til mín,“ segir Guð­mundur.

Í sam­tali við Stundina bendir Óskar Húnfjörð á að Guð­mundur hafi ávallt starfað á almennum vinnu­mark­aði þrátt fyrir fötlun sína. „Það gengur fram af manni þegar mað­ur­inn er búinn að vera þarna í þrjá­tíu ár. Það er ekki annað hægt en að láta heyra í sér, þetta er fram­koma sem er fyrir neðan allar hellur. Það blöskrar öllum sem ég hef heyrt í, þeir eru að stíga mjög vond skref. Þetta er eins og einn komment­aði á Facebook áðan, hann benti á að Gummi hafi valið það í gegnum tíð­ina að vinna frekar en að fá bætur en nú er verið að taka þann val­mögu­leika af honum,“ segir Óskar.

Viðskiptavinum í útibúum fækkar

Í svari Lands­bank­ans við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar vegna máls­ins kemur fram að bank­inn geti ekki tjáð sig opin­ber­lega um starfs­manna­mál. „Á und­an­förnum árum hefur heim­sóknum í útibú fækkað ört því um 80 pró­sent allra banka­við­skipta eru nú raf­ræn. Lands­bank­inn hefur þurft að mæta þessum breyttu aðstæðum með því að fækka starfs­mönnum í úti­búum út um allt land.

Starfs­fólki í úti­bú­inu í Reykja­nesbæ hefur fækkað úr 52 í 33 á und­an­förnum fimm árum. Uppsögn starfs­manns­ins sem um ræðir, er hluti af þessum breyt­ingum. Að öðru leyti getur Lands­bank­inn ekki tjáð sig um mál­efni ein­stakra starfs­manna,“ segir í skrif­legu svari Lands­bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár