Fyrirhugaðar breytingar á lögum um almannatryggingar atvinnuletjandi

Ellen Calmon, for­maður Öryrkja­banda­lags Íslands, segir sjón­ar­mið líf­eyr­is­þega ekki hafa hlotið áheyrn í nefnd um end­ur­skoðun laga um almanna­trygg­ingar og ótt­ast afleið­ing­arnar verði til­lögur nefnd­ar­innar að veru­leika. Frumvarp sem bygg­ist á til­lögum nefnd­ar­innar er í und­ir­bún­ingi hjá félags­mála­ráðu­neyt­inu og verður lagt fyrir Alþingi fyrir næstu kosn­ingar. Lagt er til að breyt­ing­arnar taki gildi um næstu ára­mót.

Fyrirhugaðar breytingar á lögum um almannatryggingar atvinnuletjandi
Ellen Calmon Mynd: obi.is

Full­trúar Öryrkja­banda­lags­ins og full­trúar stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna í fjöl­mennri nefnd um end­ur­skoðun laga um almanna­trygg­ingar segj­ast ekki hafa séð sér fært að skrifa undir loka­skýrslu nefnd­ar­innar og skil­uðu þess í stað sér­á­liti. Þar kemur meðal ann­ars fram að til­lögur nefnd­ar­innar feli í sér lít­inn sem engan hvata til atvinnu­þátt­töku. Þær geri ráð fyrir alltof háu skerð­ing­ar­hlut­falli tekna, eða 45 pró­sent, afnámi frí­tekju­marks og þá festi tveggja þrepa starfs­getu­mat í raun í sessi núver­andi skipt­ingu greiðslna, sem hefur hlotið tölu­verða gagn­rýni. Núver­andi skipt­ing sé atvinnu­letj­andi en mik­il­vægt sé að ein­stak­lingar með skerta starfs­getu fái aukið svig­rúm til að fóta sig á vinnu­mark­aði án þess að greiðslur falli niður. 

Tillögur ASÍ og SA samþykktar

Forsaga máls­ins er sú að í nóv­em­ber 2013 skip­aði Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, nefnd sem fékk það hlut­verk að ráð­ast í heild­ar­end­ur­skoðun laga um almanna­trygg­ingar og laga um félags­lega aðstoð. Nefndin skil­aði skýrslu þann 1. mars síð­ast­lið­inn. 

„Það kom fljót­lega í ljós í nefnd­ar­starf­inu að ASÍ og Samtök atvinnu­lífs­ins höfðu tekið sig saman um að koma fram með til­lögur að starfs­getu­mati,“ sagði Ellen Calmon, for­maður Öryrkja­banda­lags 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár