Fylgi Viðreisnar ört vaxandi

Fylgi Við­reisnar hefur auk­ist jafnt og þétt á síð­ustu mán­uðum og er nú komið upp í 9,1 pró­sent. Lektor í stjórn­mála­fræði segir pláss fyrir frjáls­lyndan hægri­flokk sem muni að lík­indum stela fylgi frá Sjálf­stæð­is­flokki, Sam­fylk­ingu og Pírötum. Viðreisn hyggst bjóða fram í öllum kjör­dæmum en enn er hins vegar með öllu óljóst hverjir munu leiða flokk­inn í kom­andi kosn­ingum.

Fylgi Viðreisnar ört vaxandi
Frá stofn­fundi

Viðreisn, yngsti stjórn­mála­flokkur lands­ins, mælist með 9,1 pró­sents fylgi ein­ungis tveimur vikum eftir stofn­fund flokks­ins og er sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum með meira fylgi en Sam­fylk­ingin. Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir stefnu­mál flokks­ins greini­lega falla kjós­endum vel í geð. „Ég er mjög ánægður með hvað við höfum fengið góðar við­tökur miðað við hvað er stutt síðan við fórum af stað,“ segir Benedikt í sam­tali við Stundina. Aðdrag­and­inn að stofnun flokks­ins hefur hins vegar verið langur en hóp­ur­inn spratt upp úr mót­mæl­unum vorið 2014 við ákvörðun Gunnars Braga Sveins­sonar, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra, um að slíta við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið án þess að spyrja hvorki þing né þjóð. Hópurinn að baki Viðreisn sam­anstendur að miklu leyti af fyrr­ver­andi sjálf­stæð­is­mönnum, höllum undir Evr­ópu­sam­bands­að­ild, og leggur meðal ann­ars áherslu á að þjóðin fái strax að kjósa um hvort ljúka skuli við­ræðum um fulla aðild að Evr­ópu­sam­band­inu.  

Pláss fyrir frjálslyndan hægriflokk

Hulda Þór­is­dóttir, lektor í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands, hélt erindi á stofn­fundi Við­reisnar þann 24. maí síð­ast­lið­inn þar sem hún fór meðal ann­ars yfir gögn úr skoð­ana­könn­unum. „Það virð­ist vera 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár