Framsóknarmenn fagna brotthvarfi Breta úr Evrópusambandinu

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son kveið evr­ópu­sam­starf­inu sextán ára gam­all. Gunnar Bragi fagnar ákvörðun Breta og segir í glettni að Ísland sé best í heimi þrátt fyrir að standa utan Evr­ópu­sam­bands­ins. Frosti Sig­ur­jóns­son óskar Bretum til ham­ingju.

Framsóknarmenn fagna brotthvarfi Breta úr Evrópusambandinu

Nokkrir þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa lýst yfir ánægju með nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar sem fram fór í Bret­landi í gær. Sem kunn­ugt er báru and­stæð­ingar Evr­ópu­sam­bands­að­ildar sig­ur­orð af Evr­ópusinnum, en kosn­inga­bar­átta útgöngu­sinna var að miklu leyti knúin áfram af þjóð­ern­is­hyggju og áróðri gegn inn­flytj­endum. Álits­gjafar og stjórn­mála­menn víða um heim hafa spáð því að úrsögn Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu verði vatn á myllu þjóð­ern­ispopúl­ískra fylk­inga og auki á sundr­ungu í Evrópu þegar þörfin á sam­vinnu sé meiri en nokkru sinni fyrr.

And­stæð­ingar Evr­ópu­sam­bands­að­ildar í Bret­landi hafa und­an­farna mán­uði gert lítið úr aðvör­un­ar­orðum sér­fræð­inga, grein­ing­ar­að­ila og alþjóða­stofn­ana, svo sem Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins og OECD, og kallað boð­skap þeirra „Project Fear“. Sams konar orð­ræða hefur látið á sér kræla á Íslandi í dag. Þannig segir til dæmis Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, í við­tali við frétta­stofu RÚV: „Breska þjóðin hefur látið hræðslu­á­róður sem vind um eyru þjóta líkt og Íslend­ingar í Icesave hér um árið.“ Aðspurður hvort að hann hafi áhyggjur af fram­hald­inu segir Gunnar Bragi: „Nei, nei. Ísland er utan Evr­ópu­sam­bands­ins og besta þjóð í heimi í dag, best í fót­bolta og allt. Engar áhyggjur.“

Óskar Bretum til hamingju

Frosti Sig­ur­jóns­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, óskar breskum félögum sínum til ham­ingju á Facebook og telur ákvörðun Breta ein­kenn­ast af hug­rekki. Íslend­ingar hafi notið góðs af sjálf­stæði allt frá 1944 og það sama verði von­andi uppi á ten­ingnum hjá Bret­landi í fram­tíð­inni. Nú sé for­gangs­mál fyrir Ísland og önnur ríki að semja um frí­verslun við frjálst og sjálf­stætt Bretland. 

Vigdís Hauks­dóttir, flokks­systir Frosta og for­maður fjár­laga­nefndar, tjáir sig einnig um úrsögn Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu á sam­fé­lags­miðlum og segir „heim­inn vestan megin“ hafa breyst síð­ustu nótt. „Fólk tal­aði með atkvæði sínu,“ skrifar Vigdís og lætur broskall fylgja. Að sama skapi er Elín Hirst, þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins, jákvæð. „Mikil sögu­leg tíð­indi ger­ast í Bret­landi, meiri­hluti lands­manna 52 pró­sent vilja yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið. Enginn veit í raun hvað þetta þýðir á þess­ari stundið, en fólkið í landið hefur kveðið upp sinn dóm, það er hlusta á eigin rödd en ekki helstu ráða­manna inn­lendra og erlendra. Ég fagna þess­ari nið­ur­stöðu og tel hann sigur fyrir lýð­ræðið,“ skrifar hún. 

Kveið fyrir sextán ára

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, seg­ist hafa haft áhyggjur af þróun Evr­ópu­sam­vinn­unnar í ára­tugi, frá því hann var ung­lingur. „Frá því að ég hóf að fylgj­ast með stjórn­málum hef ég haft áhyggjur af Evr­ópu­sam­band­inu (áður Evr­ópu­banda­lag­inu), eðli þess og þróun. Ég kveið árinu 1992 vegna þess að það ár stóð til að und­ir­rita Maastricht-sátt­mál­ann. Það gekk eftir og grunnur var lagður að evr­unni og annarri sam­runa­þróun sem að mínu mati var og er hættu­leg,“ skrifar hann á Facebook. 

Sig­mundur er fæddur árið 1975 og virð­ist því strax hafa verið orð­inn ugg­andi vegna gjald­eyr­is­sam­starfs Evr­ópu­banda­lags­ríkja sem 16 ára ung­lingur. Maastricht-sátt­mál­inn fól meðal ann­ars í sér tíma­á­ætlun um inn­leið­ingu evr­unnar og yfir­lýs­ingu um sam­vinnu í utan­ríkis- og örygg­is­málum.

 „Ég minn­ist þess enn þegar ég vakti nokkrar nætur árið 1994 til að fylgj­ast með nið­ur­stöðum þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um ESB-aðild í Finn­landi, Svíþjóð, Noregi og Aust­ur­ríki. Aðeins Noregur felldi aðild. Mestar áhyggjur hef ég þó haft af veru Bret­lands í Evr­ópu­sam­band­inu. Bretland hefur aldrei passað í ESB (og þrátt fyrir allt er ég mik­ill Bret­lands­vinur),“ skrifar Sig­mundur og bætir við: „Það skiptir alla miklu máli að það gangi vel að vinda ofan af áformum um aukið yfir­þjóð­legt vald og sam­runa Evr­ópu­sam­bands­ins en að um leið tak­ist að standa vörð um sam­vinnu Evr­ópu­landa. Þar getur Ísland gegnt mik­il­vægu hlut­verki. Við bárum gæfu til að hverfa frá áformum um að ganga í ESB. Nú ættum við að hafa for­göngu um að nálg­ast Bretland fyrir okkar hönd og EFTA og sýna strax að vilji okkar standi til að við­halda góðu sam­starfi og byggja til fram­tíðar á góðri sam­vinnu og við­skiptum sjálf­stæðra ríkja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþjóðamál

Þunna línan á milli þjóðernisstolts og oflátungsháttar
GreiningUppgjörið við uppgjörið

Þunna línan á milli þjóð­ern­isstolts og oflát­ungs­háttar

InDefence-hóp­ur­inn svo­kall­aði beitti þjóð­ern­is­legri orð­ræðu í áróð­urs­stríði við Breta, að mati Markúsar Þór­halls­sonar sagn­fræð­ings. Sótt var í 20. aldar sögu­skoðun um gullöld og nið­ur­læg­ing­ar­tíma­bil Íslend­inga­sög­unnar. 83 þús­und manns skrif­uðu undir „Icelanders are not ter­r­orists“-und­ir­skrifta­list­ann og hóp­ur­inn orsak­aði fyrstu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu lýð­veld­is­tím­ans.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár