Fótboltamaður sýknaður af nauðgun vegna fyrri kynhegðunar konunnar

Fyrri kyn­hegðun þol­anda í nauðg­un­ar­máli var notuð gegn henni fyrir rétti þegar knatt­spyrnu­mað­ur­inn Ched Evans var sýkn­aður af nauðgun í Bret­landi í dag. Hann sagð­ist hafa sleg­ist í hóp­inn með öðrum fót­bolta­manni, átt kyn­mök við kon­una og farið út um neyð­ar­út­gang, allt án nokk­urra orða­skipta við hana. Konan var yfir­heyrð um kyn­líf sitt fyrir dómi.

Fótboltamaður sýknaður af nauðgun vegna fyrri kynhegðunar konunnar
Ched Evans Fyrir utan dóms­húsið í dag. Mynd: Youtube

Knatt­spyrnu­mað­ur­inn Ched Evans var í dag sýkn­aður af nauðgun á 19 ára gam­alli stúlku, eftir að mál hans var end­ur­upp­tekið og leyft að nota for­sögu kyn­hegð­unar þol­and­ans í mati á trú­verð­ug­leika nauðg­un­ar­kærunnar.

Talið er að dóm­ur­inn og með­ferð dóm­stóls­ins á mál­inu valdi fæl­ing­ar­á­hrifum og komi í veg fyrir að konur sæki rétt sinn vegna nauð­gana.

Evans hafði áður verið dæmdur í fang­elsi á grund­velli þess að stúlkan hafi verið of ölvuð til að veita sam­þykki sitt fyrir kyn­mökum. Hann hefur setið í fang­elsi í tvö og hálft ár eftir dóm­inn 2012.

Fór út um neyðarútganginn

Stúlkan lýsti því hvernig hún vakn­aði nakin á  hót­el­her­bergi í bænum Rhyl, í norð­ur­hluta Wales, í maí 2011, minn­is­laus og ótta­slegin um að sljóvg­andi lyfi hafi verið komið fyrir í drykk hennar. Vinir hennar hvöttu hana til að leita til lög­reglu, sem komst á snoðir um að það hefði verið Evans sem bók­aði hót­el­her­bergið, sem hann yfir­gaf svo um neyð­ar­út­gang eftir atburð­ina.

Evans hafði lýst því fyrir dómi hvernig hann beitti lygum til að fá lykil að hót­el­her­berg­inu. Hann hafi opnað dyrnar að her­berg­inu og séð þar liðs­fé­laga sinn, Clayton McDonald, í kyn­mökun með stúlkunni. Hann hafi spurt hvort hann mætti taka þátt. Að hans sögn tal­aði hann ekki við stúlk­una fyrir, eftir eða á meðan kyn­mök­unum stóð. Örygg­is­mynda­vélar sýndu hann fara út um neyð­ar­út­gang her­berg­is­ins í kjöl­farið.

Evans hefur leikið með Sheffi­eld United, verið hluti af liði Manchester City og spilað með lands­liði Wales, en er nú leik­maður Chesterfield í annarri deild ensku deilda­keppn­innar. 

Kynhegðun notuð gegn þolanda

Notað var gegn kon­unni fyrir rétti að tveir menn stigu fram og lýstu kyn­lífi sínu með henni, að hún hefði hvatt þá ein­dregið til kyn­lífs með sér og að það hefði átt sér stað sömu helgi, ann­ars vegar, og tveimur vikum síðar, hins vegar. Í áfrýjun máls­ins var tekin skýrsla af kon­unni fyrir dómi. Hún var yfir­heyrð fyrir dómi um hverjum hún hefði stundað kyn­líf með, hvaða kyn­lífs­stell­ingar hún vildi og orða­notkun hennar á meðan kyn­lífi stæði. Óttast er að með­ferð máls­ins og nið­ur­staða þess hafi fæl­ing­ar­á­hrif og letji konur frá því að kæra nauðgun.

Í breskum lögum er ekki heim­ilt að nota for­tíð þol­anda í kyn­ferð­is­brota­máli gegn við­kom­andi, nema í algerum und­an­tekn­ing­ar­til­fellum. 

Polly Neate, fram­kvæmda­stjóri Women's Aid, varar við því að fæl­ing­ar­á­hrif hafi nú þegar komið fram vegna máls­ins og konur sæki ekki rétt sinn vegna nauð­gana. „Það er auð­velt að sjá hvers vegna. Það kyn­líf sem kona hefur stundað hefur ekk­ert að gera með hvort hún hefur orðið fyrir nauðgun eða ekki. Það þarf að berj­ast gegn þeim þrá­látu álykt­unum að setja sama­sem­merki á milli fyrri kyn­hegð­unar hennar og lík­indi þess að henni sé nauðgað.“

Evans ásamt unn­ustu sinniUnnusta Evans fyr­ir­gaf honum og studdi hann í dóms­mál­inu.

Þá hefur verið bent á aðstöðumun ger­and­ans og þol­and­ans; ger­and­inn auð­ugur knatt­spyrnu­maður sem naut frægðar og víð­tæks stuðn­ings, en þol­and­inn 19 ára gömul geng­il­beina sem bjó hjá for­eldrum sínum.

Fjöl­skylda Evans hafði aug­lýst að þeir sem gætu fært fram sann­anir fyrir sak­leysi hans fengju jafn­gildi um 10 millj­óna króna í verð­laun. Þá var unnusta Evans, Natasha Massey, gagn­rýnd af sækj­and­anum í mál­inu fyrir að hafa reynt að múta lyk­il­vitni í mál­inu, en dóm­ari vís­aði kvörtun­inni frá.

Þakklátur fyrir stuðninginn

Evans þakk­aði fjöl­skyldu sinni fyrir stuðn­ing­inn á meðan mál­inu stóð, en „sér­stak­lega unn­ustu minni, Natöshu, sem valdi, kannski ótrú­lega, að styðja mig á mínum myrk­ustu stundum“.

„Við getum núna öll haldið áfram og ein­beitt okkur að fót­bolta.“

„Nú þegar sak­leysi mitt hefur verið stað­fest langar mig að koma skýrt á fram­færi að ég bið, af öllu hjarta, alla þá afsök­unar sem kunna að hafa orðið fyrir áhrifum af atburðum þeirrar nætur sem um ræðir,“ sagði Evans eftir sýknu sína.

Evans er leik­maður Chesterfield. Fram­kvæmda­stjóri knatt­spyrnu­klúbbs­ins fagn­aði nið­ur­stöðu dóms­ins. „Við getum núna öll haldið áfram og ein­beitt okkur að fót­bolta.“

Konan hefur hins vegar verið ítrekað nafn­greind á sam­fé­lags­miðlum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár