Segir Ólaf Ragnar hafa „fært sig inn á háskalegar og gerræðislegar brautir gagnvart þingræðinu í dag“

Birgitta Jóns­dóttir gagn­rýndi for­seta Íslands harð­lega í umræðum eftir stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra.

Segir Ólaf Ragnar hafa „fært sig inn á háskalegar og gerræðislegar brautir gagnvart þingræðinu í dag“

Birgitta Jóns­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, gagn­rýndi Ólaf Ragnar Grímsson, for­seta Íslands, harð­lega í ræðu sinni á eld­húss­dags­um­ræð­unum sem standa nú yfir á Alþingi. 

„Mig langar, ljósi þess að við þing­menn getum ekki hreyft við neinum and­mælum þegar for­seti lýð­veld­is­ins messar yfir okkur við upp­haf sér­hvers þings, eins og hann gerði í dag, að nota tæki­færið og and­mæla stað­hæf­ingum for­set­ans,“ sagði hún og bætti því við að for­set­inn hefði snið­gengið mik­il­væg atriði í mál­flutn­ingi sínum um mögu­lega þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar sam­hliða for­seta­kosn­ingum. 

„Í fyrsta lagi þá eru þetta óþarfa áhyggjur hjá for­seta vorum Ólafi Ragnari Gríms­syni um að kosn­ingar um stjórn­ar­skrá sam­hliða for­seta­kosn­ingum verði ólýð­ræð­is­legar. Það er einmitt eina mögu­lega leiðin til að tryggja nægi­lega þátt­töku almenn­ings til að vega upp á móti ólýð­ræð­is­legum 40 pró­senta þátt­töku­tálm­unum sem voru settir í bráða­birgða­ákvæði stjórn­ar­skrár­innar. Stað­reyndin er sú að ef breyt­ing­arnar verða umdeildar þurfa yfir 80 pró­sent allra á kjör­skrá að mæta til að greiða atkvæði til að nið­ur­staða kjós­enda öðlist gildi. Lang­besta og trygg­asta leiðin til að fá fólk á kjör­stað eru full­trúa­kosn­ingar, sam­an­ber for­seta­kosn­ingar eða Alþing­is­kosn­ingar.“ 

Benti Birgitta á að engar sam­bæri­legar lýð­ræð­i­stálm­anir væru á þátt­töku til Alþings­kosn­inga eða for­seta­kosn­inga. Þá svar­aði hún einnig ummælum for­seta um að þröng tíma­mörk og sparn­að­ar­hvöt mættu ekki stofna gæðum verks­ins í hættu.

„Kæri for­seti lýð­veld­is­ins. Það er mér sönn ánægja að upp­lýsa þig um að þetta eru ekki hvat­arnir sem liggja að baki því að spyrða saman þessar tvær kosn­ingar. Hvat­arnir eru einmitt fyrst og fremst hugs­aðir til að tryggja góða þátt­töku,“ sagði hún. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forseti Íslands

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár