Forsetaframbjóðendur orðnir þrettán

Alls hafa þrettán manns lýst því yfir að þeir muni bjóða sig fram til for­seta í kosn­ing­unum þann 25. júní næst­kom­andi. Þar af hafa sjö bæst í hóp­inn frá því Stundin lét gera könnun á við­horfi almenn­ings til þeirra fram­bjóð­enda sem þegar höfðu stigið fram, auk þeirra sem nefndir höfðu verið í umræð­unni. Hér eru sjö nýj­ustu fram­bjóð­end­urnir:

Forsetaframbjóðendur orðnir þrettán

 

Kvartaði undan kókneyslu Indverja   

Bæring er fæddur á Pat­reks­firði 22. nóv­em­ber 1955. Á yngri árum starf­aði hann meðal ann­ars við sjó­mennsku, í bygg­ing­ar­iðn­aði og sölu­mennsku. Árið 1984 flutt­ist hann til Oregon og stund­aði þar nám í við­skipta­fræði við Uni­versity of Oregon til 1987. Hann er fyrr­ver­andi for­stjóri og fram­kvæmda­stjóri hjá Coca Cola International og var um hríð við stjórn mark­aðs- og sölu­að­gerða Coca Cola í Indlandi. 

Bæring tal­aði um það í við­tali við Morg­un­blaðið að honum þætti Ind­lands­mark­að­ur­inn mjög frá­brugð­inn þeim íslenska því Ind­verjar drekka „að jafn­aði ekki nema 23 flöskur á ári“. Hann segir að for­seti Íslands eigi að vera óháður stjórn­mála­öflum og hags­muna­sam­tökum til að hann geti tekið sjálf­stæðar ákvarð­anir sem varða hags­muni þjóð­ar­innar. 

Bæring er giftur Rose Olafsson bæj­ar­stjóra, sem er frá Fil­ipps­eyjum, og á sex börn og sex barna­börn.

Gleymdi að flytja lögheimilið 

Guð­mundur Franklín er fæddur þann 23. októ­ber árið 1963. Hann er við­skipta­fræð­ingur og lög­giltur verð­bréfa­sali að mennt. Hann var fyrsti íslenski verð­bréfa­miðl­ar­inn á Wall Street og var þar í á annan ára­tug. 

Guð­mundur stofn­aði flokk­inn Hægri græna, sem bauð fram í síð­ustu þing­kosn­ing­unum. Skömmu fyrir kosn­ingar kom í ljós að Guð­mundur var enn með lög­heim­ili erlendis. Hann flutti það of seint og var ekki kjör­gengur. 

Guð­mundur stofn­aði Burnham International á Íslandi og var liður í því kaup á fyr­ir­tæk­inu Handsali. Árið 2002 var félagið úrskurðað gjald­þrota og töp­uðu margir umtals­verðum fjár­hæðum. Kröfur í þrota­búið voru um fjögur hund­ruð millj­ónir króna. Eigendur Burnham á Íslandi voru í millj­óna­á­byrgðum fyrir félagið. Guð­mundur Franklín er frá­skil­inn.

Kynnti umdeilda stefnu Viðskiptaráðs 

Halla fædd­ist í Reykja­vík 11. októ­ber 1968. Hún lauk BS-prófi í við­skipta­fræði frá Auburn Uni­versity og MBA-prófi frá Thund­er­bird Uni­versity í Banda­ríkj­unum með áherslu á alþjóð­leg sam­skipti og tungu­mál. Hún leiddi verk­efnið Auður í krafti kvenna og gegndi starfi fram­kvæmda­stjóra Við­skipta­ráðs Íslands 2006 til 2007 áður en hún stofn­aði fjár­fest­inga­sjóð­inn Auði Capital. 

Þann 7. febr­úar 2007 kynnti Halla umdeilda stefnu­skrá á Við­skipta­þingi sem bar heitið: „Hvernig verður Ísland best í heimi?“ Þar var lögð áhersla á frjálst atvinnu­líf og mælir Halla meðal ann­ars með því að „höftum og íþyngj­andi reglum verði aflétt af öllum atvinnu­vegum og við­skipta­líf­inu verði í auknum mæli gef­inn kostur á að setja sér sjálft reglur“.  Einnig að „tollar, vöru­gjöld og sér­tækir skattar verði afnumdir“. Í stefnu­skránni er einnig stefnt á að skóla­kerfið verið einka­vætt, en ríkið „haldi áfram að fjár­magna menntun á leik-, grunn og fram­halds­skóla­stigi“. Þá verði ráðu­neytum og stofn­unum fækkað og nátt­úru­auð­lindir verði í auknum mæli í einka­eigu og nýttar á skyn­sam­legan máta svo þeirra verði notið af fram­tíð­ar­kyn­slóðum. 

Halla er gift Birni Skúla­syni. Þau búa á Kárs­nes­inu í Kópavogi og eiga tvö börn.

Talar um einelti og tilfinningar  

Heimir Örn er fæddur árið 1980. Hann er raf­magns­tækni­fræð­ingur með meistara­gráðu í verk­efna­stjórnun. Hann starfar sem áreið­an­leika­sér­fræð­ingur hjá Icelandair og hefur verið í samn­inga­nefndum fyrir ýmis stétt­ar­fé­lög sem samið hafa við ríkið og Samtök atvinnu­lífs­ins, auk þess sem hann er í stjórn Tækni­fræð­inga­fé­lags Íslands. 

Heimir Örn var í Borg­ara­hreyf­ing­unni og bauð sig fram árið 2009, en margir stuðn­ings­menn hennar lýstu yfir van­trausti á Hreyf­ing­unni þegar hún tók við 28 millj­óna fjár­upp­hæð sem skráðum stjórn­mála­flokkum ber að fá. Full­trúar Hreyf­ing­ar­innar höfðu áður sagst ætla að leggja hana niður eftir að þeir kæmust á stjórn­laga­þing. 

Heimir segir mik­il­vægt að „allar íþróttir“ hafi „jafnan aðgang að for­set­anum til hvatn­inga“. Á vef­síðu til­eink­aðri fram­boði hans, XHeimir, talar hann um ein­elti, meðal ann­ars eigin upp­lifun, og til­finn­ingar karl­manna. Hann segir að kos­inga­bar­átta hans eigi eftir að verða „líf­leg“. 

Heimir er giftur Þórunni Karólínu Pét­urs­dóttur og saman eiga þau þrjú börn.

Alltaf ætlað að verða forseti 

Hrannar er fæddur 5. ágúst 1973 á Húsavík. Hann lauk stúd­ents­prófi frá Verzlunarskóla Íslands 1993 og BA-prófi í félags­fræði frá Háskóla Íslands 1996. Eftir að námi lauk starf­aði Hrannar eitt sumar á Bylgj­unni og síðan hjá Sjón­varp­inu sem fast­ráð­inn frétta­maður. Hann var fram­kvæmda­stjóri mannauðs-, mark­aðs- og lög­fræði­mála hjá Vodafone auk þess sem hann var tals­maður fyr­ir­tæk­is­ins. 

Und­an­farin miss­eri hefur Hrannar starfað sjálf­stætt og veitt fyr­ir­tækjum og stofn­unum ráð­gjöf á sviði upp­lýs­inga- og sam­skipta­mála, þar með talið Stjórn­ar­ráði Íslands. 

Þegar Hrannar til­kynnti fram­boð sitt sagði Margrét, kona hans, að metn­aður hans hafi fljótt komið í ljós: „Þegar við Hrannar vorum að byrja að hitt­ast sagði hann mér að hann ætl­aði að verða for­seti og spurði hvort ég væri til í að taka það atriði með honum. Það var ekki fyrr en leið á sam­bandið að ég átt­aði mig á því að hann ætl­aði í alvör­unni að gera þetta og hingað erum við komin.“

Hrannar er giftur Margréti Arn­ar­dóttur. Þau búa í Reykja­vík og eiga saman fjögur börn. 

Vill sýna hugrekki og tala upphátt  

Vigfús Bjarni er fæddur árið 1975. Hann lauk cand. theol. prófi frá HÍ 2001. Þá stund­aði hann fram­halds­nám í sál­gæslu og lauk meist­ara­námi í kenni­mann­legri guð­fræði með áherslu á sál­gæslu frá Luther Seminary 2003. Vigfús hefur verið sjúkra­hús­prestur við Land­spít­ala háskóla­sjúkra­hús frá árinu 2005 og starfar á Barna­spít­ala Hrings­ins og BUGL. Vigfús hefur haldið fyr­ir­lestra hér heima sem og nám­skeið tengd sál­gæslu hjá End­ur­menntun Háskól­ans. 

Vigfús Bjarni seg­ist fylgj­andi því að ákveðið hlut­fall kjós­enda geti kraf­ist þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, meðal ann­ars í tengslum við nýja stjórn­ar­skrá, en þá yrði það ekki á borði for­set­ans. 

Fram að tví­tugu starf­aði Vigfús Bjarni með Sambandi ungra sjálf­stæð­is­manna. Hann segir það ekki skipta máli hvort for­set­inn sé trú­aður eða ekki. Hann telur und­ir­skrifta­fram­tak Kára Stef­áns­sonar merki­legt og seg­ist hafa „hug­rekki til að ganga inn í þessar aðstæður og tala upp­hátt“. Einnig segir hann að for­seta­emb­ættið eigi að minna á það sem sé sam­eig­in­legt í þjóð­arsál­inni - dugnað, þraut­seigju og sköp­un­ar­gáfu. 

Boraði fingrunum í Biblíuna  

Guðrún Margrét er fædd árið 1959. Hún er hjúkruna­fræð­ingur að mennt og einn af stofn­endum hjálp­ar­sam­tak­anna ABC-barna­hjálp. Hún hefur unnið mikið í sjálf­boða­vinnu síðan að hún stofn­aði sam­tökin og hefur ferð­ast víðs­vegar um heim­inn, meðal ann­ars til að kenna börnum í van­þró­uðum ríkjum að lesa og skrifa. Guðrún varð kristin þegar hún var 13 ára gömul og eru hjálp­ar­sam­tökin byggð á kristnum gildum. 

Á fram­boðs­fundi þar sem Guðrún til­kynnti um fram­boð sagð­ist Guðrún hafa „borað fingrum í Biblíuna“ þegar hún var að velta fyr­ir sér fram­boð­inu og að upp hafi komið hvert versið á fæt­ur öðru sem stað­festi fyr­ir henni og sann­færði um að hún ætti að sækj­ast eft­ir emb­ætt­inu.

Guðrún Margrét var í við­tali hjá Stund­inni í sumar í kjöl­far þess að þrír íslenskir stjórn­ar­menn, þar á meðal hún sjálf, voru reknir úr stjórn ABC sam­tak­anna í Keníu eftir deilur þar inn­an­borðs. Þórunn Helga­dóttir, for­maður ABC sam­tak­anna í Keníu, var sökuð um til­raun til þess að sölsa undir sig félagið og eignir þess. 

Þau hafa einnig tilkynnt framboð: 

Þor­grímur Þrá­ins­son, rit­höf­undur og fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu, boð­aði fram­boð til for­seta í fyrra.

Hildur Þórð­ar­dóttir, heil­ari, rit­höf­undur og þjóð­fræð­ingur, lýsti því yfir á Facebook þann 3. jan­úar að hún hyggð­ist að gefa kost á sér til for­seta og birti mynd af sér í þjóð­bún­ingi. 

Ástþór Magn­ús­son, stofn­andi Eurocard á Íslandi og for­svars­maður sam­tak­anna Friðar 2000, er löngu orð­inn þjóð­þekktur vegna skraut­legra til­rauna sinna til að verða for­seti.

Sturla Jónsson, vöru­bíls­stjóri, bar­áttu­maður fyrir hags­munum skuldugra heim­ila og for­svars­maður stjórn­mála­flokks­ins Sturla Jónsson, sem bauð fram í síð­ustu þing­kosn­ingum, ætlar að gefa kost á sér til emb­ættis for­seta. 

Ari Jós­eps­son, skemmti­kraftur er einna þekkt­astur fyrir grín og glens á Youtube þar sem hann hefur birt hvert mynd­bandið á fætur öðru. Nú vill hann verða for­seti. 

Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir rit­höf­undur stefnir ótrauð á Bessa­staði og hefur stofnað fram­boðs­síðu á Facebook þar sem hún birtir mynd­bönd og slær á létta strengi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár