Fóbía er algengasta kvíðaröskunin

Jóla­sveinar og bómull­ar­hnoðrar geta vakið ugg hjá fólki. Erla Hlyns­dóttir ræddi við fólk með fób­íur, en afmörkuð fælni er talin vera algeng­asta kvíða­rösk­unin og hrjáir um allt að 12% fólks.

Fóbía er algengasta kvíðaröskunin

Afmörkuð fælni, eða fóbía, er talin vera algeng­asta kvíða­rösk­unin en hún hrjáir um allt að 12% fólks. Almennt er talað um ótta við afmarkað fyr­ir­bæri, til að mynda ketti, snáka eða skor­dýr, og svo ótta við afmark­aðar aðstæður, svo sem við lokuð rými, að sjá blóð eða vera á fjöl­mennum stöðum. Um fóbíu er að ræða þegar ótti fólks er ekki í neinu sam­ræmi við raun­veru­lega hættu. Þrátt fyrir að afmörkuð fælni sé algeng­asta kvíða­rösk­unin er hún sú sem fólk leitar sér síst aðstoðar vegna, jafn­vel þó árangur af með­ferð sé almennt góður, en flestir reyna ein­fald­lega að haga lífi sínu þannig að þeir séu sjaldan útsettir fyrir því sem þeir ótt­ast. Algeng­ara er að konur þjá­ist af fælni en karlar þó mun­ur­inn sé mis­mun­andi eftir teg­und fóbíu. 

Borða bara með plasthnífapörum

Haraldur Jónasson ljós­mynd­ari
Metall­oph­obia – ótti við málma

„Það væri orðum ofaukið að segja að ég upp­lifði ótta en ég finn fyrir mik­illi ónota­til­finn­ingu við til­hugs­un­ina um að borða með járn­hnífa­pörum og geri það bara alls ekki. Sum járn­hnífa­pör finnst mér svo ógeðs­legri en önnur, ég fæ sér­staka klígju af gömlum járn­hnífa­pörum, hnífa­pörum úr burst­uðu járni 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár