Flúðu Ísland grunaðir um glæpi

Þeim fjölgar sem eru eft­ir­lýstir af íslenskum yfir­völdum grun­aðir um glæpi. Átta erlendir rík­is­borg­arar eru eft­ir­lýstir á vef Interpol að beiðni íslenskra dóms- og lög­reglu­yf­ir­valda í dag. Árið 2007 voru aðeins tveir karl­menn á list­anum.

Flúðu Ísland grunaðir um glæpi
Í járnum Grunaður glæpa­maður leiddur fyrir dóm. Myndin teng­ist grein­inni ekki. Mynd: Geirix / Pressphotos.biz

Misþyrmdu íbúum með exi

Tomasz Roch Dambski
Tomasz Roch Dambski

Tomasz Roch Dambski
46 ára, Pólverji.
Líkamsárás og innbrot

Tomasz Dambski er einn fjór­menn­ing­anna sem árið 2008 voru dæmdir fyrir Keilu­fells­málið svo­kall­aða. Hann var dæmdur í tveggja og hálfs árs fang­elsi. Þann 22. mars árið 2006 braust hópur manna, þeirra á meðal Tomasz, inn á heim­ili sjö Pólverja við Keilu­fell 35 í Breið­holti. Árásin var sér­lega hrotta­fengin en árás­ar­menn mis­þyrmdu íbúum með vopnum eins og exi, hamri, gadda­kylfu, sleggju og hafna­bolta­kylfu. Bæði vitni að árásinni sem og fórn­ar­lömb sögðu að árás­ar­menn hafi í heild­ina verið rúm­lega tíu tals­ins.

Talaði við drauga eftir árásina

Í lög­reglu­skýrslu vegna máls­ins kom fram að fórn­ar­lömbin sjö hlutu marg­vís­lega og mis­al­var­lega áverka. Einn þeirra sem ráð­ist var á var ekki með fulla með­vit­und þegar hann var fluttur á gjör­gæslu, en sam­kvæmt lækn­is­vott­orði hlaut hann djúpa skurði á hnakka sem og bein­brot í augn­botni, and­lits­beini, hand­leggjum og rif­beini. Eitt fórn­ar­lambanna veikt­ist alvar­lega á geði eftir árás­ina og sagði sam­býl­is­maður við­kom­andi að hann hefði „talað mikið við sjálfan sig og ein­hverja anda eða drauga“. Hann fór síðar í með­ferð á göngu­deild geð­sjúkra­húss í Póllandi vegna geð­klofa.

Löðrungaði árásarmann

Lög­reglan taldi til­efni árás­ar­innar hafa verið inn­heimta vernd­ar­tolls. Fórn­ar­lömb gáfu þó aðra skýr­ingu í vitn­is­burði, að „heim­sóknin“ hefði tengst far­tölvu sem hafði verið stolið af heim­il­inu. Einn heim­il­is­manna hefði grunað tvo árás­armanna um þjófn­að­inn og því löðr­ungað annan þeirra. Árásin hafi því verið hefnd­ar­að­gerð.

Bar fyrir sig ölvun

Við yfir­heyrslu, sem fram fór dag­inn eftir árás­ina, tjáði Tomasz lög­reglu­mönnum að hann myndi ekki eftir sér dag­inn áður vegna ölv­unar. Hann sagð­ist hafa verið heima við vodka­drykkju og ekki muna aftur eftir sér fyrr en hann var í haldi lög­reglu. Fórn­ar­lömb báru þó kennsl á Tomasz þegar þeim voru sýndar ljós­myndir úr safni lög­regl­unnar, og sagð­ist einn hafa unnið með Tomasz.

Við aðal­með­ferð kaus Tomasz, einn sak­born­inga, að tjá sig ekki að öðru leyti en því að hann neit­aði sök. Árið 2009 stað­festi Hæsti­réttur dóm Tomasz og ári síðar var hann fyrst eft­ir­lýstur af Interpol.

Fíkniefnin falin í veggnum

Mohd Bashar Najeh Suleiman Almasaid
Mohd Bashar Najeh Suleiman Almasaid

Mohd Bashar Najeh Suleiman Almasaid
36 ára, Jórdani.
Stórfelld fíkniefnabrot

Mohd var í lok árs 2005 dæmdur í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í fimmtán mán­aða fang­elsi fyrir stór­felld fíkni­efna­brot. Um var að ræða tals­vert magn af  bæði amfetamíni og e-töflum sem fund­ust falin inni í vegg veit­inga­stað­ar­ins Purple Onion sem Mohd þá átti og rak. Í maí árið 2006 þyngdi svo Hæsti­réttur dóm­inn í tveggja ára fang­elsi.

Amfetamín og e-pillur

Í dómi Hæsta­réttar kemur fram að Mohd hafi mót­tekið „245,75 g af amfetamíni, 400 töflur sem inni­héldu amfetamín, 106 töflur sem inni­héldu blöndu af amfetamíni og metam­fetamíni, 50 töflur sem inni­héldu MDMA og 100 töflur sem inni­héldu blöndu af MDMA og N-ethyl-MDA“ af ónafn­greindum manni fyrir utan 10/11 við Bar­óns­stíg sum­arið 2005.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár