Flóttinn frá Íslandi: „Hvern mánuð eignumst við því smátt og smátt meira í íbúðinni“

Sóley Kaldal, íbúi í Kaup­manna­höfn og dokt­or­snemi.

Flóttinn frá Íslandi: „Hvern mánuð  eignumst við því smátt  og smátt meira í íbúðinni“

Ég hef búið í Kaup­manna­höfn í rétt tæpan ára­tug, eða öll mín full­orð­insár. Hér keypti ég mína fyrstu íbúð, sótti mér fram­halds­menntun og eign­að­ist fjöl­skyldu. Við eigum litla íbúð hér í borg sem við greiðum 1 pró­sent óverð­tryggða vexti af. Það þýðir að höf­uð­stóll láns­ins hækkar aldrei, heldur lækkar jafnt og þétt við hverja greiðslu til bank­ans. Í hverjum mán­uði eign­umst við því smátt og smátt meira í íbúð­inni. Vaxta­greiðslur hús­næð­is­lána má svo telja fram í skatt­skýrslu og fá að hluta til end­ur­greiddar í formi afsláttar af tekju­skatti.

Íbúðin okkar er lítil, aðeins rúmir 50 fer­metrar og tveggja her­bergja, þrátt fyrir að við séum brátt fjög­urra manna fjöl­skylda. Það er alvana­legt í stór­borgum að búa smátt og það þykir bæði sjálf­sagt og eðli­legt hér. Það er engin sam­fé­lags­leg pressa á stórt og íburða­mikið hús­næði, heldur er þvert á móti litið jákvæðum augum á nægju­semi og hóf. Það er ódýrt að búa smátt, færri fer­metrar þurfa færri hús­muni og minni orku­nýt­ingu. 

Þétt byggð veitir líka rek­star­for­sendu fyrir fjöl­breytta þjón­ustu enda er hverfið okkar, líkt og öll önnur hverfi í Kaup­manna­höfn, full­kom­lega „göngu­fært“. Það þýðir að öll grunn­þjón­usta er í innan við 10 mín­útna göngu­færi og engin þörf er á bíl fyrir vel flest fólk. Fyrir utan blokk­ina okkar, 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár