Fjármálaráðherra í fríi erlendis meðan verkfall skellur á

Bjarni Bene­dikts­son er erlendis í einka­er­indum sam­kvæmt upp­lýs­inga­full­trúa ráðu­neyt­is­ins. Séð og heyrt segir hann hafa það náð­ugt í Flórída. Hundruð starfs­manna á Land­spít­al­anum hófu verk­fall í dag.

Fjármálaráðherra í fríi erlendis meðan verkfall skellur á

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, er í leyfi þessa dag­ana og staddur erlendis í einka­er­indum. Þetta stað­festir upp­lýs­inga­full­trúi ráðu­neyt­is­ins í sam­tali við Stundina. Séð og heyrt greindi frá því í dag að Bjarni Bene­dikts­son væri í Flórída, en þetta er í sam­ræmi við þær upp­lýs­ingar sem Stundin hefur fengið. Ekki náð­ist sam­band við aðstoð­ar­menn Bjarna við vinnslu frétt­ar­innar. Skemmst er að minn­ast þess að fyrr á þessu ári fór Bjarni til útlanda í einka­er­indum meðan lækna­deilan stóð yfir.

560 manns í verkfalli

Talsverð upp­lausn ríkir á vinnu­mark­aði, en eins og Stundin hefur greint frá hófu 560 manns hjá Banda­lagi háskóla­manna verk­fall í dag, en flestir vinna á Land­spít­al­anum. „Áhrif þessa eru víð­tæk og mun gæta í mest­allri starf­semi Land­spít­ala,“ segir í frétta­til­kynn­ingu frá spít­al­anum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár