Segir Evrópusambandið streitast gegn lýðræði og félagslegum markmiðum

Grískur stjórn­mála­fræð­ingur segir í sam­tali við Stundina að skulda­vandi Grikk­lands og með­ferð þess hjá Þrí­eyk­inu hafi varpað ljósi á alvar­legar brotala­mir í evru­sam­starf­inu. Joseph Stiglitz telur að lífs­við­ur­væri Grikkja sé fórnað á alt­ari fjár­mála­stofn­ana.

Segir Evrópusambandið streitast gegn lýðræði og félagslegum markmiðum

„Evr­ópu­sam­bandið hefur fellt grímuna og afhjúpað sig sem ólýð­ræð­is­lega stofnun,“ segir Markos Vogiatzoglou, grískur stjórn­mála- og félags­fræð­ingur sem vinnur við rann­sóknir hjá European Uni­versity Institute, í sam­tali við Stundina. 

„Þrátt fyrir þær hörmu­legu afleið­ingar sem harka­leg aðhalds­stefna kall­aði yfir íbúa Grikk­lands und­an­farin fimm ár, þá kröfð­ust full­trúar Evr­ópu­sam­bands­ins þess að slíkri stefnu yrði áfram haldið til streitu. Samt er stefnan ekki aðeins ómann­úð­leg heldur hefur hún líka brugð­ist þegar litið er til þeirra mark­miða í rík­is­fjár­málum sem lagt var upp með.“

Sjón­ar­mið Vogiatzoglou eru mjög í anda þeirra sem hafa t.d. birst í skrifum Joseph Stiglitz, nóbels­verð­launa­hafa í hag­fræði, und­an­farna daga. Hann hefur lýst fram­göngu þrí­eyk­is­ins – „troikunnar“ sem sam­anstendur af Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inum, fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins og Evrópska seðla­bank­anum – sem „árás á lýð­ræðið í Grikk­landi“.

Bendir hann á að sú efna­hags­á­ætlun sem Grikkir voru látnir und­ir­gang­ast fyrir fimm árum hefur reynst afar illa, dregið allan þrótt úr hag­kerf­inu, valdið gríð­ar­legu atvinnu­leysi og 25 pró­senta sam­drætti vergrar lands­fram­leiðslu. Þrenn­ingin hafi hvorki axlað ábyrgð á mis­tök­unum né lært af þeim, enda sé þess enn kraf­ist að Grikk­land skili umtals­verðum afgangi á fjár­lögum næstu árin. Þetta myndi óhjá­kvæmi­lega dýpka krepp­una í Grikk­landi, þar sem atvinnu­leysi er nú þegar um 25 pró­sent. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skuldavandi Grikklands

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár