„Það var alltaf stutt í brosið hjá þessum ljúfa dreng“

Jóhannes Hilmar Jóhann­es­son lést í hörmu­legu bílslysi á fimmtu­dag­inn á Reykja­nes­braut. Hann lætur eftir sig sam­býl­is­konu og þrjú börn. Vinir og vanda­menn Jóhann­esar Hilmars hafa sett af stað söfnun til að létta undir með fjöl­skyld­unni á þeim erf­iðu tímum sem framundan eru.

„Það var alltaf stutt í brosið hjá þessum ljúfa dreng“
Jóhannes Hilmar Jóhannes Hilmar var aðeins 34 ára gam­all en hann lætur eftir sig sam­býl­is­konu og þrjú börn.

Jóhannes Hilmar Jóhann­es­son lést eftir árekstur við vöru­bif­reið með tengi­vagn á mótum Reykja­nes­brautar og Hafn­ar­vegar á fimmtu­dags­morgun. Jóhannes Hilmar var aðeins 34 ára gam­all en hann lætur eftir sig sam­býl­is­konu og þrjú börn. Vinir og vanda­menn Jóhann­esar Hilmars segja að hann hafi verið sann­kall­aður vinur vina sinna. Nú ætli þeir að standa við bakið á fjöl­skyld­unni hans og þremur börnum, en þau eru fimm, níu og ell­efu ára gömul. Hafa þeir hrundið af stað söfnun til styrktar fjöl­skyld­unni.

„Allir sem voru það heppnir að þekkja þennan dreng vita hverslags öðlingur hann var. Vinur vina sinna og rúm­lega það,“ segir Þor­steinn Pálsson, einn af vinum Jóhann­esar Hilmars.

„Það eru erf­iðir tímar framundan hjá fjöl­skyld­unni hans og þess vegna ákváðum við, vinir fjöl­skyld­unnar, að setja af stað þessa söfnun til þess að létta undir. Við viljum ekki að fjöl­skyldan hafi áhyggjur af fjár­málum á sama tíma og hún gengur í gegnum þessa erf­iðu tíma,“ segir Þor­steinn en styrkt­ar­reikn­ing­ur­inn er skráður á sam­býl­is­konu Jóhann­esar Hilmars, Jónu Rut Gísla­dóttur.

„Jóhannes var frá­bær fjöl­skyldu­faðir, dugn­að­ar­forkur og það var alltaf stutt í brosið hjá þessum ljúfa dreng. Svo má ekki gleyma því að hann var ein­stak­lega ein­lægur og hjálp­samur þegar það kom að okkur vin­unum. Við þökkum því með virð­ingu og gleð­inni hans Jóa öllum þeim sem geta lagt hönd á plóg fyrir þessa ynd­is­legu fjöl­skyldu sem missti svo mikið á fimmtu­dag­inn.“

Upp­lýs­ingar um styrkt­ar­reikn­ing­inn:

Jóna Rut Gísla­dóttir 
Kennitala: 080282-3629 
Reikn­ings númer: 0542-14-405500

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár