Aumingjaskapur að mæta ekki út af veðri, segir kennari

Kennari í Garða­skóla furðar sig á því hversu fáir nem­endur eru mættir í skól­ann. Veð­ur­stofan hvetur fólk til að halda sig heima.

Aumingjaskapur að mæta ekki út af veðri, segir kennari
Vetr­ar­veður Sitt sýn­ist hverjum um alvar­leika óveð­urs­ins í dag. Mynd: Stundin

Ragn­heiður Steph­en­sen, stærð­fræði­kenn­ari við Garða­skóla í Garðabæ, seg­ist agn­dofa yfir lélegri mæt­ingu nem­enda við skól­ann. Þetta skrif­aði hún á Facebook-hóp fyrir íbúa Garð­ar­bæjar í morgun. Veð­ur­stofan sendi út storm­við­vörun í gær og hvatti borg­ar­búa ein­dregið til að halda sig heima í dag ef þeir gætu. „Er aum­ingja­upp­eldi orðið normið! Það var ekk­ert af veðri í morgun og veðrið á að vera búið seinni­part­inn en samt vantar 75% af nem­endum 10. bekkjar í Garða­skóla. Hvað eru for­eldrar að spá. Þeir sem eru mættir liggja núna í símunum og væla sig heim. Þau eru í prófum. Er þetta skila­boðin sem á að senda starf­skörftum fram­tíð­ar­innar. Ég treysti því að allir þessir for­eldrar séu þá heima hjá sér líka fyrst veðrið er svona vont! Lög­reglan var að hindra það að farið væri út á illa búnum bílum þegar götur lok­ast en í bæj­ar­fé­lagi sem hægt er að ganga flest að þá á ég bara ekki orð!“ skrifar Ragn­heiður. 

Borgarbúar hvattir til að vera heima

Veð­ur­stofa var­aði í gær við mik­illi snjó­komu og skafrenn­ingi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Erfitt að yrði að kom­ast leiðar sinnar og að búast mætti við að bílar yrðu fastir um alla borg. Þessi spá gekk eftir og eru til að mynda um þrjá­tíu bílar nú fastir á Suð­ur­lands­vegi við Vest­ur­lands­veg, að því er fram kemur í frétt RÚV. Birta Líf Krist­ins­dóttir veð­ur­fræð­ingur hvatti fólk til að halda sig heima ef það gæti. Þessi við­vörun var ítrekuð í morgun. 

Enn er spáð er dimmri hríð undir hádegi og stormi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en ætla má að lægi um klukkan tvö. Síðdegis, milli kl 15 og 18, snýst vindur í hæg­ari vest­an­átt með élja­gangi, fyrst á Reykja­nesi. Versn­andi veðri er spáð aust­an­lands síðla dag, með austan hvass­viðri eða stormi og mik­illi ofan­komu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár