Aðlögun og endurhæfing endaði með einangrun

Hug­myndir um end­ur­hæf­ingu og tungu­mála­kennslu fyrir hæl­is­leit­endur á Arn­ar­holti gengu ekki eftir. Íbúar segja að verið sé að halda þeim kerf­is­bundið frá íslensku sam­fé­lagi. Prestur inn­flytj­enda gagn­rýnir ein­angr­un­ar­að­gerðir Útlend­inga­stofn­unar.

Aðlögun og endurhæfing endaði með einangrun
Fyrir utan Arn­ar­holt Níu hæl­is­leit­endur á Arn­ar­holti mót­mæltu bágri aðstöðu á heim­il­inu árið 2015 og gengu í sex klukku­stundir til Reykja­víkur þar sem þeir gistu í bíla­stæða­kjall­ara. Þeir bentu meðal ann­ars á að þeim væri haldið ein­angr­uðum og fjarri mat­vöru­verslun.

Háleitar hug­myndir voru uppi þegar gömlu vist­heim­ili fyrir geð­sjúka að Arn­ar­holti á Kjal­ar­nesi var breytt í það sem kallað var „verk­efna­mið­stöð fyrir hæl­is­leit­endur“ sum­arið 2014. Tals­maður eig­enda fast­eign­ar­innar – félags­ins Fylkis ehf. sem hafði keypt hús­næðið af ríki og Reykja­vík­ur­borg árið áður – sagð­ist meðal ann­ars hafa þróað sér­stakt verk­efni sem fæli í sér end­ur­hæf­ingu og tungu­mála­nám sem mið­aði að því að virkja hæl­is­leit­endur til þess að taka þátt í íslensku sam­fé­lagi. Hug­mynd­inni var almennt vel tekið og samn­ingar náð­ust við Útlend­inga­stofnun sem leigir nú hús­næðið og hýsir þar hæl­is­leit­endur sem bíða úrlausna umsókna sinna um alþjóð­lega vernd.

Stundin hefur rætt við hæl­is­leit­endur sem búa á Arn­ar­holti en eng­inn þeirra kann­ast við að slík „verk­efna­mið­stöð“ sé eða hafi verið starf­rækt í hús­næð­inu. Þannig vissu íbúar, sem blaða­maður ræddi við, ekki til þess að tungu­mála­kennsla færi fram í Arn­ar­holti, né heldur að nokkuð slíkt væri í und­ir­bún­ingi. Þá gátu við­mæl­endur blaðs­ins ekki séð að unnið væri að end­ur­hæf­ingu íbú­anna með sér­stökum hætti. „Ég hef aldrei heyrt að þeir hafi viljað vera með tungu­mála­nám og sé engin ummerki um að slíkt sé í bígerð,“ segir við­mæl­andi sem vill ekki láta nafns síns getið. Hann segir íbúa Arn­ar­holts upp­lifa sig ein­angr­aða og fjarri íslensku sam­fé­lagi en þeir þurfa til dæmis að ganga langan veg til þess eins að kom­ast í næsta strætó­skýli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár