Einhverfur drengur á leiðinni á götuna

Á biðlista eftir félags­legri íbúð. Var að leigja svart en getur ekki greitt af leig­unni sem hækkar reglu­lega, nú síð­ast um 10 þús­und krónur á mán­uði.

Ekki nógu fatlaður
Ekki nógu fatl­aður Dreng­urnn fellur á milli úrræða í kerf­inu. Ekki fær um að vinna og greiða þannig sjálfur fyrir hús­næði, en getur búið einn og því ekki nógu fatl­aður til þess að eiga rétt á úrræði hjá búsetu­kjörnum borg­ar­innar. Myndin er svið­sett og teng­ist efni frétt­ar­innar ekki beint. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ein­hverfur drengur sem hefur leigt litla íbúð í Breið­holti svart síð­ustu tvö ár mun missa hús­næðið vegna þess að eig­and­inn ákvað að hækka leig­una fyr­ir­vara­laust. Hann er kom­inn á biðlista eftir félags­legu úrræði, en mun ekki fá úthlutun í tæka tíð og stefnir því í að enda heim­il­is­laus um næstu mán­að­ar­mót. 

Eigandi íbúð­ar­innar sem dreng­ur­inn hefur leigt af hefur hækkað leig­una reglu­lega, og nú síð­ast um 10 þús­und krónur á mán­uði. Þar sem leigan er svört fær hann engar húsa­leigu­bætur, eða aðra félags­lega aðstoð við nið­ur­greiðslu á hús­næð­inu, sem hann ætti ann­ars rétt á. Einnig hefur tregða leigusal­ans til þess að láta af hendi gögn um að dreng­ur­inn hafi verið að leigja af honum orðið til mik­illa trafala í til­raunum hans og fjöl­skyld­unnar til þess að útvega honum úrræði við hæfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár