Græða 58 milljónir og fá aukaframlag frá bænum

Bæj­ar­full­trúi í Garðabæ gagn­rýnir ójafn­ræði í fjár­veit­ingum til grunn­skóla í sveit­ar­fé­lag­inu. Ekki eðli­legt að sveit­ar­fé­lög greiði umfram til fyr­ir­tækja sem skili hagn­aði.

Græða 58 milljónir og fá aukaframlag frá bænum
María Grét­ars­dóttir Bæj­ar­full­trúi FÓLKSINS-í bænum í Garðabæ seg­ist margoft hafa bent á ójafn­ræði í fjár­veit­ingum til grunn­skóla í sveit­ar­fé­lag­inu.

„Þau eru að slá ryki í augu fólks með því að segja þetta,“ segir María Grét­ars­dóttir bæj­ar­full­trúi FÓLKSINS-í bænum í Garðabæ í sam­tali við Stundina. Hún lagði fram bókun á síð­asta bæj­ar­stjórn­ar­fundi þar sem hún hvetur bæj­ar­yf­ir­völd til þess að gæta jafn­ræðis í fjár­veit­ingum til grunn­skóla í sveit­ar­fé­lag­inu. Stundin fjall­aði ítar­lega um málið í gær. Í bók­un­inni eru jafn­framt lagðar fram tölur sem sýna meðal ann­ars að bæj­ar­skólar Garða­bæjar fá ein­ungis 67 pró­sent af þeim kennslu­kostn­aði sem Barna­skóli Hjalla­stefn­unnar fær frá sveit­ar­fé­lag­inu. 

Ekki epli og appelsínur

Útreikn­ing­arnir sem lagðir voru fram með bók­un­inni mið­ast við þann kostnað sem eftir stendur þegar hús­næð­is­kostn­aður hefur verið dreg­inn frá rekstr­ar­kostn­aði grunn­skól­anna. Sigríður Hulda Jóns­dóttir, for­maður skóla­nefndar grunn­skóla í Garðabæ, sagði þetta leik að tölum og að málið væri ekki svona ein­falt. „Sam­setn­ingin á þessum tölum kemur frá bænum sjálfum, þannig þetta eru ekki epli og app­el­sínur eins og þau vilja …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár