Danskt varðskip eltir grænlenskan togara í tengslum við leitina að Birnu

Íslensk yfir­völd hafa óskað eftir aðstoð frá danska sjó­hernum í tengslum við leit­ina að Birnu Brjáns­dóttur. Talið er að skip­verjar um borð í tog­ar­anum Polar Nanoq hafi leigt rauða Kia Rio-bif­reið sem lög­reglan hefur leitað að. Skipið fór frá höfn á laug­ar­dag­inn.

Danskt varðskip eltir grænlenskan togara í tengslum við leitina að Birnu
HDMS Triton Danska varð­skipið siglir í humátt á eftir Polar Nanoq. Mynd: Photographer:Eddie Leonard

Íslensk stjórn­völd hafa óskað eftir aðstoð frá danska sjó­hernum í tengslum við leit­ina að Birnu Brjáns­dóttur. Þetta segja heim­ildir Stund­ar­innar en sam­kvæmt þeim hefur nú dönsku varð­skipi verið stefnt að græn­lenska tog­ar­anum Polar Nanoq sem fór frá Hafn­ar­fjarð­ar­höfn á laug­ar­dags­kvöldið.

Talið er að græn­lenskir skip­verjar um borð teng­ist rauðri Kia Rio-bif­reið sem lög­reglan hefur leitað að í tengslum við hvarf Birnu aðfara­nótt laug­ar­dags. Eiga þeir að hafa leigt bif­reið af sömu teg­und af Bíla­leigu Akur­eyrar á föstu­deg­inum og skilað henni á laug­ar­deg­inum. Togarinn fór síðan úr höfn eins og áður segir á laug­ar­dags­kvöld.

Skip­stjór­inn á Polar Nanoq stað­festir í sam­tali við Stundina að skipið sé nú á leið til Íslands.

Siglingaleið grænlenska togarans
Sigl­inga­leið græn­lenska tog­ar­ans Á vefnum MarineTraffic.com má fylgj­ast með skipa­um­ferð víða um heim. Ef litið er á græn­lenska togar­ann Polar Nanoq kemur í ljós að vef­ur­inn stað­setur skipið síð­ast fyrir þrettán klukku­tímum. Hér má sjá sigl­inga­leið skips­ins frá því það lagði frá Hafn­ar­fjarð­ar­höfn á laug­ar­dags­kvöldið.

Nákvæm staðsetning ekki fyrir hendi

Danska varð­skipið HDMS Triton nálg­ast nú græn­lenska togar­ann. Ekki er vitað um nákvæma stað­setn­ingu tog­ar­ans eða varð­skips­ins eða hvort þeir hafi yfir höfuð náð sam­bandi við græn­lensku áhafn­ar­með­lim­ina. Ef litið er á vef­inn MarineTraffic.com sem heldur utan um skipa­um­ferð víða um heim má sjá að vef­ur­inn stað­setur græn­lenska togar­ann síð­ast fyrir rúmum þrettán klukku­tímum en þá stefndi það hrað­byri á græn­lenska lög­sugu.

Þess ber að geta að lög­reglan telur að skór sem fund­ust í Hafn­ar­fjarð­ar­höfn séu skórnir sem Birna gekk í kvöldið sem hún hvarf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvarf Birnu Brjánsdóttur

Fréttir

Lögmaður Nikolaj skilur ekki af hverju hann hefur enn stöðu sak­born­ings

Unn­steinn Örn Elvars­son, lög­fræð­ingur Nikolaj Olsen, segir að skjól­stæð­ingur sinn hafi verið him­in­lif­andi þegar hann fékk þær fréttir að hann yrði lát­inn laus úr gæslu­varð­haldi en ein­angr­unin hefur reynt veru­lega á hann. Ekki verður farið fram á far­bann yfir honum en hann hefur verið stað­fastur í frá­sögn sinni, lýst yfir sak­leysi og reynt að upp­lýsa málið eftir bestu getu.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár