„Hann hefur bókstaflega lagt lífið að veði"

Ljós­mynda­bókin Andlit norð­urs­ins eftir Ragnar Axelsson ljós­mynd­ara lýsir mann­lífi á norð­ur­slóðum.

„Hann hefur bókstaflega lagt lífið að veði"
Barnið Þessi ein­staka mynd Ragnars Axels­sonar lýsir þeirri hyl­djúpu sorg sem ríkti á Flateyri eftir snjó­flóðið mann­skæða. Mynd: RAX

Andlit norð­urs­ins eftir Ragnar Axelsson, RAX, er sann­kallað stór­virki. Þetta er mikil bók í stóru broti, prentuð á góðan pappír. Hún er að mestu byggð upp á ljós­myndum sem eiga sumar hverjar ekki sinn líkan. Stuttur texti, byggður á dag­bókum ljós­mynd­ar­ans, fylgir gjarnan með. Mynd­irnar eru svart­hvítar frá Færeyjum, Græn­landi og Íslandi.

 

Fyrsti hluti bók­ar­innar er ein­göngu myndir. Síðan koma kaflar um löndin þrjú þar sem magn­aðar myndir ljós­mynd­ar­ans blasa við les­and­anum, ein af annarri. Það skal við­ur­kennt að ég bók­staf­lega gleymdi mér við lest­ur­inn. Ragnar tekur ekki myndir af slétt­greiddum súkkulað­i­drengjum eða stíf­mál­uðum konum. Við­fangs­efni hans er gjarnan fólk sem er markað af lífs­bar­átt­unni. Og hann leggur sig fram um að ná fólk­inu í sínu umhverfi. Gjarnan eru dýr á mynd­unum. Þarna er að finna sauð­kindur, hunda, hesta og kýr í lands­lagi þar sem ljós­mynd­ar­inn nær að draga fram hrika­lega feg­urð.

Sorgin

Ein af mögn­uð­ustu myndum á okkar tímum er sú sem RAX tók í Flat­eyr­ar­kirkju þegar sam­fé­lagið var að ganga í gegnum hræði­lega sorg eftir snjó­flóðið. Myndin sýnir lítið barn sem horfir í átt­ina að ljós­mynd­ar­anum. Við hlið þess er full­orðin mann­eskja sem heldur fyrir augu sér og er með kerti í hönd. Svo sést sem í móðu fram eftir kirkj­unni. Þarna er sorgin en líka vonin. Þessi mynd hefur allt til að bera. Ekki þarf að efast um að góð mynd sé á við þús­und orð. Þarna er engu við að bæta. Og það er hægt að rýna aftur og aftur í mynd­ina og leyfa sér að verða svo­lítið meyr við minn­ing­una um atburð sem var nær óbæri­legur fyrir mjög marga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár