Blöskraði múslimahatrið á Pírataspjallinu

„Er þessi hópur aðal­lega að úthúða múslimum? Er ekk­ert mál­efna­legt eða upp­byggi­legt í gangi hérna? Kær kveðja, íslenski múslím­inn,“ skrifar Nadía Tamimi í nýrri færslu á Pírata­spjall­inu. Hún segir for­dóma dag­legt brauð og að íslenskir múslimar séu gjarna kenndir við hryðju­verka­menn.

Blöskraði múslimahatrið á Pírataspjallinu

Nadíu Tamimi var brugðið þegar hún fór á Pírata­spjallið í morgun. „Ég ætl­aði að sýna stuðn­ing við Pírata og ætl­aði að taka þátt í þeim umræðum en mætti áróðri og ras­isma og ógeði. Ég var dálítið hissa og setti inn status. Fólk er að útskýra fyrir mér að þessi leið­indi séu nýtil­komin þannig að ég ætla aðeins að staldra við og sjá hvert stefnir,“ segir Nadía en status­inn var svohljóð­andi:

„Ákvað að kíkja hér inn og taka þátt og sýna stuðn­ing við Pírata. Er bara búin að vera í nokkrar mín­útur í þessum hópi, rétt rúlla yfir síð­una og commentin og hrein­lega blöskrar … Er þessi hópur aðal­lega að úthúða múslimum? Er ekk­ert mál­efna­legt eða upp­byggi­legt í gangi hérna? Kær kveðja, íslenski múslím­inn.“

„Við erum öll stimpluð sem hryðju­verka­menn“

Hún segir að þetta hafi verið leið­in­leg upp­lifun því hún hafi komið þarna inn í góðri trú. Það breytir því ekki að hún er enn stað­ráðin í að kjósa Pírata í næstu kosn­ingum. „Þetta fær mig ekki til þess að skipta um skoðun. Ég er ákveðin í að kjósa þá. Ég veit að Píratar standa ekki fyrir þessu, eða ég trúi því ekki og því var leið­in­legt að sjá þetta taka yfir spjallið.“

Pírata­spjallið er hópur á Facebook sem er öllum opinn og þar geta allir tjáð sig. Nadía seg­ist hafa áhyggjur af vax­andi ras­isma hér á landi. „Þetta hefur verið vanda­mál hér á landi. Sér­stak­lega eftir fréttir gær­dags­ins og alltaf þegar það koma upp svona ljótar upp­á­komur þá er ráð­ist á múslima almennt, sama hversu vondir eða sak­lausir þeir eru. Það eru allir settir undir sama hatt og við erum öll stimpluð sem hryðju­verka­menn. Þetta er orðið þreytt en ég er orðin ýmsu vön og hætt að taka þetta alveg inn á mig, en það er sárt að horfa upp á þetta.“

Nadía hefur fengið að finna fyrir því á eigin skinni að hún sé múslimi á Íslandi. Hún hefur fengið hat­ur­s­pósta og mætt for­dómum. „Það er bara orð­inn partur af okkar dag­lega lífi á Íslandi í dag. Því miður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár