Björt Ólafsdóttir: „Nú er nóg komið“

Björt Ólafs­dóttir umhverf­is­ráð­herra vill loka kís­il­málm­verk­smiðju United Silicon í kjöl­far elds­voð­ans í nótt.

Björt Ólafsdóttir: „Nú er nóg komið“

Björt Ólafs­dóttir umhverf­is­ráð­herra segir að nú sé nóg komið og það þurfi að loka kis­il­málm­verk­smiðju United Silicon í Helguvík. Þetta kom fram á Facebook síðu ráð­herr­ans í morgun. 

Eldur kom upp í verk­smiðju United Silicon í Helguvík í nótt. Allt  til­tækt slökkvi­lið hjá Bruna­vörnum Suðnesja var kallað á vett­vang eftir að Neyð­ar­lín­unni barst til­kynn­ing af elds­voð­anum um klukkan fjögur í nótt. Eldurinn log­aði á þremur hæðum húss­ins, þar sem starfs­fólk á vöktum allan sóla­hring­inn. Slökkvi­störfum lauk um klukkan sjö í morgun.

Björt nefnir nokkrar ástæður fyrir því að hún vill láta loka verk­smiðj­unni. Í fyrsta lagi þurfi að kanna af hverju íbúar í grennd við hana séu að upp­lifa ein­kenni sem meng­un­ar­mæl­ingar geti ekki útskýrt. „Í öðru lagi þarf að kanna vinnu­að­stæður sér­stak­lega,“ skrifar hún. „Á sam­eig­in­legum fundi fyrir umhverfis og sam­göngu­nefnd lýsti for­stjór­inn því, aðspurður um hugs­an­lega hækkun á Arsen í and­rúms­lofti, að starfs­mennn væru að opna út vegna þess að þeim væri svo heitt. Þess­vegna los­að­ist út mengun beint af gólf­inu sem að væri ekki búin að fara í gegn um reyk­hreinsi­kerfi. Hvað kom­ast þessir sömu starfs­menn í mikla snert­ingu við alls konar óæski­leg efni?“

Í þriðja lagi þurfi að kanna fjár­mögnun. „Það er ljóst á öllu að fyr­ir­tækið þarf fjár­magn. Hverjir eru að bjóða það fram núna? Ég ætla rétt að vona að það séu ekki sam­eig­in­legir sjóðir þeirra sömu lands­manna og ýta á að fyr­ir­tækið loki,“ segir Björt.

Verk­smiðja United Silicon tók til starfa í nóv­em­ber síð­ast­liðnum og hefur starf­semin verið afar umdeild. Íbúar Reykja­nes­bæjar hafa kvartað undan mengun frá verk­smiðj­unni og Umhverf­is­stofnun hefur verið með fyr­ir­tækið í hálf­gerðri gjör­gæslu vegna fjölda frá­vika frá starfs­leyfi. 

Hér má sjá færslu Bjartar í heild:

 
Sjá færsluna á Facebook

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Áhrif kísilvers United Silicon

FréttirÁhrif kísilvers United Silicon

Arion um sjálf­bærni­stefnu sína og kís­il­verið: „Bankinn tekur þá ábyrgð mjög alvar­lega“

Arion banki er með­vit­aður um þá ábyrgð sem hvílir á bank­anum varð­andi mögu­lega end­ur­opnun kís­il­vers­ins í Helguvík. Kís­il­ver­inu var lokað vegna meng­unar árið 2017. Stefna bank­ans í umhverf­is­málum hefur tekið breyt­ingum á liðnum árum og svarar bank­inn meðal ann­ars spurn­ingum um hvernig þessa stefna rímar við end­ur­opnun meng­andi kís­il­vers.
ViðskiptiÁhrif kísilvers United Silicon

Guð­brandur þurfti púst til að hjálpa sér við að anda út af kís­il­verk­smiðj­unni

Arion banki hyggst opna aftur kís­il­verk­smiðj­una í Helguvík sem hefur verið lokuð í tæpt ár. Allir bæj­ar­full­trúar í Reykja­nesbæ hafa lýst sig and­víga opn­un­inni og 350 athuga­semdir bár­ust frá íbúum í bænum. Guð­brandur Ein­ars­son', bæj­ar­full­trúi og þing­maður VIð­reisnar, lýsir áhrifum verk­smiðj­unnar á heilsu­far sitt og útskýrir hvers vegna má ekki opna hana aftur.
FréttirÁhrif kísilvers United Silicon

Stjórn­mála­menn töl­uðu upp United Silicon og fögn­uðu ákaft: „Við erum búin að bíða lengi“

„Þetta er mjög stór stund,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þá for­sæt­is­ráð­herra, þegar fyrsta skóflustungan var tekin að verk­smiðju United Silicon, sem fór í gjald­þrot í dag eftir að hafa marg­brotið starfs­leyfi og mein­tan fjár­drátt for­stjór­ans. Bæj­ar­stjór­inn í Reykja­nesbæ gagn­rýndi úrtöluraddir. „Við erum búin að bíða lengi,“ sagði iðn­að­ar­ráð­herra.

Myndband

FréttirÁhrif kísilvers United Silicon

Dul­ar­fullur barón keypti í kís­il­veri og seldi virkj­ana­rétt­indi

Ítalskur barón, Felix Von Longo-Lieb­en­stein, hefur verið virkur í jarða­kaupum á Íslandi frá síð­ustu alda­mótum en hefur náð að halda sér utan kast­ljóss fjöl­miðla. Hann var einn af hlut­höf­unum í kís­il­fyr­ir­tæk­inu United Silicon og seldi dótt­ur­fé­lagi HS Orku vatns­rétt­indi út af virkjun á Ströndum. Illa gengur að fá upp­lýs­ingar um bar­ón­inn.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár