Björn Ingi kemur Þórhalli miðli til varnar

„Þúsundir Íslend­inga vita betur.“ Þór­hallur Guð­munds­son mið­ill var tek­inn fyrir í Brestum. Átti í erf­ið­leikum með að ná sam­bandi við Þorbjörn Þórð­ar­son. Spá­mið­ill á leyni­upp­töku.

Björn Ingi kemur Þórhalli miðli til varnar
Mið­ill­inn Þór­hallur Guð­munds­son mið­ill átti í erf­ið­leikum með frétta­mann Stöðvar 2. Mynd: Stöð 2

„Það truflar mig ekk­ert þótt ein­hverjir telji lítið vit í dul­rænum hæfi­leikum Þórhalls Guð­munds­sonar vinar míns. Þetta er frjálst og upp­lýst sam­fé­lag. Þúsundir Íslend­inga vita hins vegar af eigin reynslu miklu betur en svo,“ skrifar Björn Ingi Hrafns­son, útgef­andi Press­unar, DV og þátta­stjórn­andi á Stöð 2 á Facebook um þá útreið sem Þór­hallur Guð­munds­son mið­ill fékk í þætt­inum Brestum á Stöð 2 í gær­kvöldi.

Tals­verðar umræður urðu á Facebook um sam­skipti miðl­anna og þátta­stjórn­anda Bresta. Fjöl­margir tóku upp hansk­ann fyrir mið­il­inn en aðrir töldu þetta vera svik. Frétta­mað­ur­inn Þorbjörn Þórð­ar­son rak mið­il­inn hvað eftir annað á gat og ekk­ert sam­band náð­ist við anda­heima. Þór­hallur reyndi ítrekað að finna snerti­flöt við látin ætt­menni ,,Tobba“ en án árang­urs. Frétta­mað­ur­inn fékk síðan Sindra Guð­jóns­son, for­mann Vantrúar, til að lýsa aðferða­þræði mið­il­is­ins sem var afgreidd sem blekk­ing. Sagði hann að blekk­ing­arnar væru ekki alltaf með ráðnum hug. „En þetta eru alltaf svik,“ sagði Sindri. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Miðlar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár