Bjarni Bernharður tók sýru á ný

Lista­mað­ur­inn og skáldið Bjarni Bern­harður, sem fjall­aði um glímu sína við geð­klofa, sýru­neyslu og afleið­ingar mann­dráps í bók sinni Hin hálu þrep, seg­ist hafa notað sýru á ný eftir 33 ára hlé.

Bjarni Bernharður tók sýru á ný
Bjarni Bern­harður Glímdi við alvar­legar afleið­ingar sýru­neyslu, geð­klofa og myrk­urs bernsk­unnar. Mynd: Kristinn Magnússon

Rit­höf­und­ur­inn og ljóð­skáldið Bjarni Bern­harður Bjarna­son lýsir því yfir að hann hafi neytt aftur sýru eftir 33 ára hlé. Bjarni hefur und­an­farið rætt og rétt­lætt ákvörðun sína á Facebook-síðu sinni, en einnig hefur hann skrifað opið and­mæla­bréf í kjöl­far þess að hann var var­aður við neysl­unni.

Bjarni gaf nýverið út bók­ina Hin hálu þrep, þar sem hann segir meðal ann­ars frá bar­átt­unni við geð­klofa og neyslu LSD. Þar lýsir hann meðal ann­ars mann­dráp­inu sem hann framdi árið 1988 í geð­rofi og undir áhrifum af LSD.

Vill opna umræðuna

„Ég er að prufu­keyra nýju sýruna, þenja pæl­ingar um gler­hála braut hug­ans. Allt virkar vel, bremsur og stýri­bún­aður,“ segir Bjarni á Facebook-síðu sinni, þar sem hann hefur rætt end­ur­vakn­ingu sína á neyslu sýru und­an­farna daga. Hann lýsir jákvæðum áhrifum af sýrunni. 

„Nú er ég sjálf­sagt að ögra umheim­inum og það gæti orðið mér dýr­keypt, en samt, best að láta það flakka: Ég droppað sýru fyrir mán­uði síðan. Í dag er koma í ljós hvað áhrif það hafði. Sýran (sem var mjög öflug) dýpkaði mig og þétti (ég var orð­inn hrip­lekur og stefndi upp á grunnið). Ég tel mig hafa náð að virkja stöð í vit­und­ar­djúp­inu sem mig bráð­vant­aði í ser­í­una.“
 
Í sam­tali við Stundina seg­ist Bjarni hafa neytt sýrunnar í ákveðnum til­gangi og að það hafi heppn­ast. „Ég not­aði hana í ákveðnum til­gangi, sem snertir mína sköpun. Ég er mál­ari og rit­höf­undur. Þetta var ferli í minni vinnu að þurfa að nota þessa sýru. Það voru ákveðnir hlutir sem þurfti að koma í lag. Ég get sagt, að það heppn­að­ist full­kom­lega.“ Hann vísar til þess að John Lennon hafi neytt sýru og skapað ein­hver merk­ustu tón­verk sög­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár