Birgitta Jónsdóttir: Engin hefðbundin þingstörf fyrr en dagsetning kosninga liggur fyrir

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar segja ekki fund­ar­hæft á Alþingi fyrr en dag­setn­ing kosn­inga liggi fyrir. Rík­is­stjórnin hafi enn ekki kynnt for­gangs­röðun mála. Ekkert hafi komið út úr fundi með for­sæt­is­ráð­herra í morgun.

Birgitta Jónsdóttir: Engin hefðbundin þingstörf fyrr en dagsetning kosninga liggur fyrir

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar not­uðu lið­inn fund­ar­stjórn for­seta til þess að kalla á eftir nákvæmri dag­setn­ingu á kjör­dag í fyr­ir­hug­uðum þing­kosn­ingum næsta haust. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, sagði meðal ann­ars með öllu óvið­un­andi fyrir Alþingi Íslend­inga að hvorki ekki liggi fyrir dag­setn­ing á kosn­ing­unum né hvaða mál verði sett í for­gang. 

Sigurður Ingi Jóhanns­son átti fund með for­mönnum stjórn­ar­and­stöð­unnar í hádeg­inu. Stein­grímur J. Sig­fús­son, þing­maður Vinstri grænna, sagði nákvæm­lega ekk­ert hafa komið út úr þeim fundi. „Ekki dag­setn­ing kosn­inga, ekki einu sinni fyrstu drög af for­gangs­röðun mála,“ sagði hann. Stein­grímur sagði einnig til­gangs­laust að hefja vinnu í nefndum, því nefnd­irnar vita ekki í hvaða mál þau eiga að fara. 

Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, þing­maður furð­aði sig á því að for­seti Alþingis láti sér detta í hug að setja á fund við þessar aðstæður. „Krafa almenn­ings er skýr. Hér er búið að mót­mæla dögum saman og krefj­ast kosn­inga strax,“ sagði hún og bætti því við að ekki væri fund­ar­hæft á Alþingi fyrr en dag­setn­ing kosn­inga liggur fyrir. 

„Krafa almenn­ings er skýr. Hér er búið að mót­mæla dögum saman og krefj­ast kosn­inga strax.“

Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, sagði þetta óboð­legt ástand og ekki í boði að ætl­ast til þess að þing­menn færu í hefð­bundin þing­störf og láta eins og ekk­ert hafi gerst. Hún kall­aði sömu­leiðis á eftir dag­setn­ingu kosn­inga. „Hér verða engin hefð­bundin þing­störf fyrr en það hefur verið gert,“ sagði hún. 

Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tók illa í þessi orð Birgittu. „Hér höfum við það,“ sagði hann. „Á meðan þið gerið ekki eins og við viljum þá verða engin hefð­bundin þing­störf.“ Jón sagði nákvæm­lega það vera að ger­ast sem stjórn­ar­flokk­arnir ótt­uð­ust fyrir helgi. 

Róbert Marshall, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, fór næstur í ræðu­stól. „Í fyllstu ein­lægni, er til of mik­ils mælst að biðja um dag­setn­ingu á kosn­ingar? Er það dóna­skapur?“ spurði hann meðal ann­ars. Hann sagði kröfu stjórn­ar­and­stöð­unnar ein­falda; að fá dag­setn­ingu á kosn­ing­arnar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár