Biggi lögga kraumar af reiði vegna úrræðaleysis

Birgir Örn Guð­jóns­son, betur þekktur sem Biggi lögga, birti í gær­kvöldi hjart­næman pistil um reynslu sína af ein­hverfum 14 ára dreng. Dreng­ur­inn hafði kom­ist í áfengi og í kjöl­far þess skorið sjálfan sig með hníf. Honum var komið undir lækn­is­hendur en þar sem hann var drukk­inn voru engin úrræði fyrir hendi til að vista hann undir eft­ir­liti sér­fræð­inga.

Biggi lögga kraumar af reiði vegna úrræðaleysis

Birgir Örn Guð­jóns­son, betur þekktur sem Biggi lögga, birti í gær­kvöldi hjart­næman pistil um reynslu sína af ein­hverfum 14 ára dreng. Birgir segir að málið hafi setið í sér. Hann seg­ist ítrekað hafa verið kall­aður að heim­ili drengs­ins til að aðstoða for­eldra hans. Steininn hafi þó tekið út á dög­unum þegar við blasti algjört úrræða­leysi heil­brigð­is­kerf­is­ins gagn­vart drengnum. Drengur hafði kom­ist í áfengi og í kjöl­far þess skorið sjálfan sig með hníf. Honum var komið undir lækn­is­hendur en þar sem hann var drukk­inn voru engin úrræði voru fyrir hendi til að vista hann undir eft­ir­liti sér­fræð­inga. Birgir seg­ist ekki hafa trúað eigin eyrum þegar stungið var upp á því að dreng­ur­inn yrði sendur á Stuðla.

„Lög­reglu­menn fara gjarnan í mál sem erfitt er að skilja eftir þegar þeir fara heim af vakt­inni. Um dag­inn fór ég í eitt slíkt. Það situr ekki í mér vegna þess að það var eitt­hvað and­lega eða lík­am­lega erfitt, heldur frekar vegna þess að það fram­kall­aði í mér ákveðna reiði. Það er vont,“ skrifar Birgir.

Róaði drenginn

Birgir rekur sögu sína af drengnum en í gegnum tíð­ina hefur hann oft þurft að hafa afskipti af honum. Hann segir að hann hafi fyrst komið á heim­ili drengs­ins þegar hann neit­aði að koma út úr her­bergi sínu. „Fyrir nokkru síðan fór ég í útkall á heim­ili þar sem 14 ára ein­hverfur drengur átti mjög erfitt og heim­il­is­fólkið réð ekki við hann. Þegar við komum á vett­vang hafði dreng­ur­inn lokað sig inni í her­bergi. Ég fór inn til hans og ræddi við hann í góða stund. Hann róað­ist og við sömdum um að ég myndi líta til hans næst þegar ég væri á vakt og taka hann með í bíltúr á löggu­bílnum. Ég stóð auð­vitað við það og við áttum fína stund saman þar sem ég sýndi honum allar löggu­græjurnar og við spjöll­uðum um dag­inn og veg­inn,“ skrifar Birgir.

„Svo hafði hann tekið stóran eld­hús­hníf og skorið sig í annan hand­legg­inn, þar á meðal einum mjög djúpum skurði.“

Hafði skorið sjálfan sig

Nýverið var Birgir kall­aður aftur á heim­ilið en þá hafði dreng­ur­inn kom­ist í áfengi. Þegar Birgir mætir á stað­inn hafði dreng­ur­inn, sem aldrei hafði smakkað áfengi áður, drukkið níu bjóra. „Um dag­inn var lög­reglan aftur kölluð á þetta heim­ili. Klukkan var um eitt að nóttu til og for­eldr­arnir höfðu vaknað við óp í drengnum. Kom þá í ljós að hann hafði kom­ist í bjór sem faðir hans átti. Hafði þá þessi drengur sem aldrei áður hafði bragðað áfengi, drukkið níu bjóra á mjög skömmum tíma. Svo hafði hann tekið stóran eld­hús­hníf og skorið sig í annan hand­legg­inn, þar á meðal einum mjög djúpum skurði. Þegar við komum á stað­inn leið honum mjög illa. Hann lá á for­stofu­gólf­inu og engd­ist um. Það var ekki hægt að ná til hans og hann var allur útældur.

Sjúkra­flutn­inga­menn sem komu á stað­inn treystu sér ekki til að flytja hann á slysa­deild þar sem hann var mjög æstur og ógn­andi. Ég fékk því stóran lög­reglu­bíl á vett­vang og var hann fluttur með honum. Móðir hans fór líka á slysa­deild­ina í fylgd barna­vernd­ar­full­trúa sem einnig var kall­aður á vett­vang. Eftir á heim­il­inu var fað­ir­inn auk sex ára systur drengs­ins, sem var sem betur fer sof­andi allan tím­ann,“ skrifar Birgir.

„Okkur var bent á að hugs­an­lega væri hægt að koma honum á Stuðla. Ég trúði ekki mínum eigin eyrum.“

Boðið að fara á Stuðla

Það var þó ekki fyrr en komið var slysa­deild sem reiðin fór að krauma í Birgi. „Á slysa­deild tók við honum það frá­bæra starfs­fólk sem þar vinnur. Á meðan sárið var saumað reyndi barna­vernd­ar­full­trú­inn að finna ein­hver úrræði fyrir dreng­inn. Hann var eins og áður sagði ein­hverfur, leið gíf­ur­lega illa, hafði reynt að skaða sjálfan sig og tal­aði um að skaða sig meira. Það varð að finna bráða­úr­ræði fyrir hann. Það sem kom út úr sím­tölum barna­vernd­ar­full­trú­ans var ekki neitt. Nákvæm­lega ekki neitt. Þar sem hann var undir áhrifum áfengis vildi heil­brigð­is­kerfið ekki taka við honum. Okkur var bent á að hugs­an­lega væri hægt að koma honum á Stuðla. Ég trúði ekki mínum eigin eyrum.

Ég hef áður lent í því að þurfa til dæmis að setja veika ein­stak­linga í fanga­klefa vegna þess að þeir passa hvergi inn í kerfið, en þarna var ég með fár­veikt barn og eng­inn vildi taka við því. Móðir hans, sem greini­lega hefur þurft að þola ýmis­legt var ráð­þrota. Hún treysti sér ekki til að taka hann heim þar sem systir hans var sof­andi og ég skildi hana alveg. Dreng­ur­inn þurfti eft­ir­lit og hann þurfti hjálp. Ég fann reið­ina krauma í mér. Við sáum samt að það eina í stöð­unni var að aka honum aftur heim. Þar tóku móðir hans og barna­vernd­ar­full­trú­inn við honum og hátt­uðu hann upp í rúm. Við lög­reglu­menn­irnir kvöddum og héldum áfram að sinna útköllum sem biðu,“ skrifar Birgir.

Lögreglan einhverskonar „ruslakista“

Birgir segir að málið hafi á end­anum farið vel, dreng­ur­inn hafi dag­inn eftir fengið við­tal á BUGL. Lög­reglu­mað­ur­inn bendir á allt of oft sé litið á lög­regl­una sem ein­hvers­konar ruslakistu sam­fé­lags­ins. „Ég heyrði í móð­ur­inni í dag. Hún sagði að þessi upp­á­koma hefði eðli­lega sett ýmis­leg úr skorðum hjá þeim. Hann hafi samt farið í við­tal á BUGL dag­inn eftir sem er gott. Hún sagði samt að sonur hennar hafi sjálfur verið hissa á því að hann hafi farið heim aftur. Ég get ekki sagt allt það sem dreng­ur­inn sagði þann tíma sem við vorum yfir honum en ég get sagt það að hann var að kalla á hjálp. Mér finnst sú stað­reynd að hann hafi verið undir áhrifum ekki breyta neinu um það að hann hafi átt rétt á þeirri hjálp strax. Fjöl­skyldan öll átti rétt á því. Í sam­tal­inu við móð­ur­ina gaf hún mér leyfi til að skrifa nokkrar línur um þetta mál og hún hvatti mig meira að segja til þess. Það ætti að segja eitt­hvað.

Ég skrifa þetta samt alls ekki til að dæma þá sem sögð­ust ekki getað tekið við þessum dreng þessa til­teknu nótt. Það eru ein­stak­lingar sem eru að gera sitt besta í kerfi sem greini­lega er götótt. Því miður er lög­reglan oft notuð sem ein­hvers­konar „rusla­kista“ þegar veikir ein­stak­lingar passa ekki í mótin sem kerfið hefur búið til. Það á gjarnan við þegar um er að ræða fíkla eða geð­sjúka ein­stak­linga. Þegar eng­inn vill þá enda þeir í hönd­unum á okkur. Ég veit ekki hver lausnin á þessum vanda er, enda er ég ekki sér­fræð­ingur í heil­brigð­is­málum. Ég veit bara að veikir ein­stak­lingar sem lög­reglan er oft með í hönd­unum ættu oft mun frekar heima innan heil­brigð­is­kerf­is­ins. Ekki vegna þess að við viljum ekki aðstoða þá, heldur vegna þess að heil­brigð­is­starfs­fólk eru sér­fræð­ing­arnir.

Ég veit að þessi mál eru í sífelldri skoðun og lag­fær­ingu og ég vona að þessi orð verði til þess að blása mönnum enn meiri vilja í brjóst við að halda þeirri vinnu áfram. Ölvun eða ann­ar­legt ástand má ekki taka neinn rétt af veikum ein­stak­lingum. Það er eitt­hvað rangt við það. Við erum föst í ein­hverjum víta­hring með þessi mál. Það er sam­starfs­verk­efni okkar allra að lag­færa þessi mál til þess að þeir sem minnst mega sín fái þá aðstoð sem þeir eiga rétt á. Kerfið og hug­ar­farið í þessum málum þarfn­ast lag­fær­ingar,“ skrifar Birgir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár